10 - 12 ára Stuttmyndagerð
Nemendur kanna hvar mörkin milli stuttmynda- og myndlistarvideogerðar liggja.
Unnið verður með hið hlutbundna og hið óhlutbundna til að skapa ólík hughrif áhorfenda, og verða tilraunagleði og úrræðasemi einkunnarorð nemenda, frekar en að leggja áherslu fyrirfram mótaða útkomu.
Nemendur vinna saman í hópum og vinna með hugtök eins og stop-motion, grafík, tæknibrellur, búninga, "miniatures", hljóð, ljós, make-up, "svíaðar" myndir og fl. og er hugmyndin að nemendur noti þær aðferðir sem henta umfjöllunarefni þeirra best hverju sinni. Markmiðið er að hreyfa við áhorfandanum, Þetta eru jú hreyfimyndir...
- Jólafrí 12.12.2011 - 8.1.2012
- Páskafrí 2. - 15.apríl 2012






