10 - 12 Leir og Skúlptúr
Nemendur þjálfast í rennslu og mótun leirs. Rennsla krefst nokkurrar þjálfunar og einbeitingar en nemendur á þessum aldri eiga gott með að tileinka sér aðferðina. Möguleikar leirrennslu auka skilning nemenda á umhverfi sínu og auðga efnistilfinningu þeirra. Með innsýn í þessa sígildu aðferð við mótun leirs fá nemendur skilning á hvernig fjölmargir hversdagslegir hlutir eru gerðir renna nemendur renna ásamt því að gera óhlutbundnar tilraunir. Í námskeiðið fléttast einnig mótun og munu nemendur útbúa ævintýralega og óvenjulega hluti. Í fjölbreyttum verkefnum takast nemendur á við grundvallaratriði sjónlista í tvívídd og þrívídd; form, lit, ljós og skugga. Markmiðið er að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu, jafnframt því að þroska almenn vinnubrögð og tilfinningu fyrir formi og efni. Leitast við að kveikja áhuga á myndgerð og formhugsun í víðara samhengi, m.a. gegnum listasögu.
- Jólafrí 12.12.2011 - 8.1.2012
- Páskafrí 2. - 13.apríl 2012






