13 - 16 ára Myndlist - Grafarvogi
Á námskeiðinu er lögð áhersla á skapandi og skemmtilega vinnu og verður teiknun, málun og skúlptúr deilt niður á tímafjöldann..Markmið: að nemandi geti sýnt hæfni til þess að útfæra eigin hugmynd með teikningu, öðlist reynslu í meðhöndlun á vatnslitum og akríl lit og geti úrfært tvívíða hugmynd í þrívídd/skúlptúr.Teiknun: Kennslan byggir á innsýn inn í heima samtímans þar sem myndlist hönnun og arkitektúr leika aðalhlutverk. Nemendur læra að teikna ísómetríu, fjarvídd og skoða og skilja skuggavarp. Í framhaldi af því útfæra nemendur eigin hugmynd með teikningu þar sem möguleikar blýantsins sem verkfæri fá að njóta sín.Málun: Kennd verður notkun á gæða vatnslitum og akríl litum.Málað verður úti undir berum himni þar sem ljós og skuggavarp er stöðugt að breytast. Rýnt verður í möguleika og fræði litanna. Einnig verður leitast við að þróa hugmyndir úr teiknitímanum í máluð verk.Skúlptúr: Kennd verður meðferð á gifsi og mótagerð. Samsetningar og eiginleikar ýmissa efna. Þróun á fyrri hugmyndum á námskeiðinu verði hafðar að leiðarljósi í hugmyndavinnu. Markmiðið er að hver einstaklingur fái að njóta sín við að útfæra skúlptúr eftir eigin hugmynd.






