13 - 16 ára Tölvuleikir og Vídeólist
Nýtt námskeið í samstarfi við Skema ehf (www.skema.is). Myndlist – tölvur – forritun – vídeó – tölvuleikir – hljóð -margmiðlun. Á námskeiðinu munu nemendur hella sér út í skapandi möguleika margmiðlunar. Unnið verður með leikjaforritun og videolist. Þátttakendur fá kennslu og innsýn í möguleika tækninnar á skemmtilegan og áhugaverðan máta. Kennslan byggir á leikjaforritun í þrívíðu-forritunarumhverfi auk þess sem fléttað er inn í kennsluna hugarkortum og flæðiritum við ,,hönnun” leikjanna. Markmið námskeiðsins er að að þátttakendur sjái forrit verða að veruleika auk þess sem þátttakendur munu sjá hvað forritun getur verið skemmtileg og áhugaverð. Nemendur munu læra helstu grunnatriði hreyfimyndagerðar. Áhersla verður lögð á notkun á fundnu efni sem er hægt að nálgast á netinu, m.a. "sprætur" úr tölvuleikjum, gamalt efni úr fortíðinni og internet"memes". Nemendum verður kennt á myndvinnsluforrit og hvernig hægt er að "sampla" myndefni, undirbúa það undir frekari notkun og breyta að eigin vilja. Nemendur munu vinna með hljóð og hljóðsetja sjálfir það sem skapað verður á námskeiðinu. Lögð verður áhersla á stutt verkefni þar sem sköpunargleðin er látin ráða ríkjum. Nemendur munu taka verkefni hvers annars, breyta þeim, bæta við þau og þróa þau í óvæntar áttir Nemendur munu læra inn á grunnatriði klippiforrita, á einföld tónlistarforrit, að hlaða myndefni inn á videogeymsluvefi eins og Youtube og Vimeo, og að bjarga sér í sköpun lifandi myndefnis með einfaldri tækni og kvikum vinnubrögðum. Kennarar á námskeiðinu eru Kolbeinn Hugi Höskuldsson, myndlistarmaður Rakel Sölvadóttir, tölvunarfræðingur og sálfræðinemi og Hannes Högni Vilhjálmsson, margmiðlunarlistavísindamaður. Námskeiðið er í samstarfi við skema.is.
Allt efni innifalið. Mælst er til að nemendur hafi með sér léttan bita / hollt nesti en fari ekki að kaupa í nestisímanum.
- Páskafrí 2. - 15.apríl 2012






