4 - 5 ára Myndlist - Grafarvogi
Kennsla fer fram í vinnustofu Brynhildar Þorgeirsdóttur myndlistamanns Bakkastöðum 113, 112 Rvk.
Blandað námskeið með stuttum ólíkum verkefnum. Áhersla á að hugmyndaríki barnanna fái að njóta sín í hverju verkefni fyrir sig. Unnið verður í fjölbreytt efni og börnunum gefið færi á að prófa og fikta. Hluti námskeiðsins fer fram á verkstæði þar sem meðhöndluð verða einföld verkfæri og fengist við margvíslegar fínhreyfiæfingar. Markmið kennslunnar er að ýta undir eðlislæga athygli og áhuga barnanna á eigin umhverfi (manngerðu sem náttúrulegu) og gildum þess, um leið og þau eru leidd inn í heim sjónmennta og lista. Þau verkefni sem lögð eru fyrir byggja á grunnatriðum sjónrænna mennta; línu, form, áferð og lit, ljósi og skugga.Komið er til móts við börnin þar sem þau eru stödd á þroskaferli sínu og fjallað um þessi atriði út frá kunnugu og daglegu umhverfi þeirra um leið og leitast er við að skerpa sýn þeirra, næmni og opna hug þeirra fyrir víðara samhengi. Framsetningin er þó ætíð á forsendum barnanna.
- Páskafrí 2. - 15.apríl 2012






