Áfangar Keramik kjörsvið


KHL 102 Umhverfisskoðun, skissuvinna og teikning.
  • Unnið er utan skóla að hluta, háhitasvæði og náttúran skoðuð. Unnið á staðnum, form og áferðir náttúru og manngerðs umhverfis skoðuð með efnisprufum, leir-/gifsafþrykki og ljósmyndun. Úrvinnsla inni í skóla. Í gegnum teiknimiðilinn er unnið með form og áferðir í tengslum við umhverfisskoðunina, nemendur opni hug sinn gagnvart viðfangsefninu, beiti náinni skoðun og þrói verkefnin áfram á persónulegan máta. Fjallað er um leir og sambandið milli hugmyndar, hráefnis, listrænnar sköpunar og hæfni nemandans til að starfa sjálfstætt. Fyrirlestrar um sögu keramiks hér á landi. Markmið: Að nemandi kynnist efninu í gegnum jarðsögulega tengingu, efli skynjun sína á formum og áferðum tengdum efninu, geti sótt myndefni sitt í mismunandi umhverfi og sýni persónulega afstöðu í vali og úrvinnslu. Þroski myndræna skynjun sína með skapandi vinnubrögðum. Að nemandi geti notað teikningu sem miðil hugmynda sinna, geti beitt nákvæmri skoðun í gegnum teikningu, þrói og styrki sína persónulegu sýn. Námsmat: Æskilegt er að sköpun, túlkun og tjáning vegi u.þ.b. 2/3 af lokamati.  Skynjun, greining og mat 1/3. Undir ferlið: sköpun / túlkun / tjáning falla skilgreind verkefni nemenda, skissur, verkefni o.þ.h. Þessi verk skulu metin út frá markmiðum í lok áfangans. Meta á faglega þekkingu og tæknilega úrvinnslu eins og hún kemur fram í afurð. Undir ferlið: skynjun /greining /mat falla öll gögn nemenda sem tengjast þeirri færni, skrifleg greiningarverkefni, glósur og þáttaka nemenda í umræðum á önninni.

KHL 205 Umhverfisskoðun færð yfir í efni.
  • Í þessum áfanga eru kennd grunnatriði í meðferð leirs frá mótanlegum massa yfir í fast form. Nemendur læra að hnoða leir, endurvinna leir og um meðferð leirs í formmótun. Helstu mótunaraðferðir leirs kenndar, s.s. að byggja upp form með plötu- og slöngutækni. Einnig verður kennd gerð einfaldra gipsforma og stimpla. Með þeim aðferðum færir nemandi hugmyndir sínar úr umhverfiskoðuninni yfir í efnið. Unnið verður með samsett form, samspil ytra og innra forms, áferð og hrynjandi. Áhersla er lögð á nemendi nái valdi á meðferð leirs ásamt fjölbreyttum vinnuaðferðum. Markmið: Að nemandi þroski og efli formskynjun sína og sé fær um að yfirfæra hugmyndir sínar yfir í efnið, nemandi kynnist því hvernig mismunandi yfirborð breytir ásýnd og eigindum forma. Námsmat: Æskilegt er að sköpun, túlkun og tjáning vegi u.þ.b. 2/3 af lokamati.  Skynjun, greining og mat 1/3. Undir ferlið: sköpun / túlkun / tjáning, falla skilgreind verkefni nemenda, skissur, verkefni o.þ.h. Þessi verk skulu metin út frá markmiðum í lok áfangans. Meta á faglega þekkingu og tæknilega úrvinnslu eins og hún kemur fram í afurð. Undir ferlið: skynjun /greiningu /mat falla öll gögn nemenda sem tengjast þeirri færni, skrifleg greiningarverkefni, glósur og þáttaka nemenda í umræðum á önninni.

KHL 306   Rennsla, leirlitur og glerungar
  • Kennd eru undirstöðuatriði og grunnhandtök í rennslu á leir. Nemendur Kennd eru undirstöðuatriði og grunnhandtök í rennslu á leir. Nemendur læra að ná miðpunkti og renna einföld form. Blandaðir eru leirlitir og unnið með þá á blautan leirinn. Nemendur kynnast efnafræðilegum grunnatriðum glerunga með fyrirlestum um helstu hráefni og litarefni. Nemendur blanda glerungagrunn, skoða virkni málmoxíða og vinna prufur á tvær ólíkar leirtegundir. Lögð áhersla á vönduð og skipulögð vinnubrögð í formi hugmyndamöppu sem inniheldur prufur, tilraunir og vinnulýsingar.Markmið: Að nemandi nái því valdi á rennslu að hann geti unnið eftir vinnuteikningu. Geti blandað einfaldan grunnglerung og geri með tilraunum ýmis tilbrigði við hann. Geti þannig unnið eftir hönnunarferlinu frá því að hugmynd kviknar og þar til að hluturinn hefur fengið ákveðið form og lit. Námsmat: Æskilegt er að sköpun, túlkun og tjáning vegi u.þ.b. 2/3 af lokamati. Skynjun, greining og mat 1/3. Undir ferlið: sköpun / túlkun / tjáning falla skilgreind verkefni nemenda, skissur, verkefni o.þ.h. Þessi verk skulu metin út frá markmiðum í lok áfangans. Meta á faglega þekkingu og tæknilega úrvinnslu eins og hún kemur fram í afurð. Undir ferlið: skynjun /greining /mat falla öll gögn nemenda sem tengjast þeirri færni, skrifleg greiningarverkefni, glósur og þáttaka nemenda í umræðum á önninni.
KHL 403   Hugmyndavinna og hönnun / skreyti og form.
  • Mörg stutt verkefni lögð fram til að auka hugmyndaflæði og til að víkka og stækka hugmyndaheim nemenda. Hönnunarferillinn skoðaður frá hráefni að fullunnu verki. Vettvangsheimsóknir og markaðsskoðun. Nemendur fullvinna verkefni frá hugmynd til lokaútfærslu tengt arkitektúr/skreyti-, eða vöruhönnun með nytjahlut í huga. Aðferðir þær sem skulu notaðar til hönnunar eru einfaldar byggingaraðferðir leirsins, það er slöngutækni, byggt úr plötum eða mótað úr einum klumpi. Lögð er rík áhersla á hugmyndavinnu og kannanir í skissubók. Markmið: Að nemandi kynnist margvíslegum skreytiaðferðum og geti beitt þeim á markvissan máta  í tengslum við form og áferð. Að nemandi tileinki sér markvissa hugmyndavinnu, og geti formgert hugmynd sína út frá fagurfræðilegum forsendum og valið þá vinnsluaðferð sem hentar forminu. Að nemandi fullvinni verkefni frá hugmynd til lokaútfærslu. Námsmat: Æskilegt er að sköpun, túlkun og tjáning vegi u.þ.b. 2/3 af lokamati. Skynjun, greining og mat 1/3. Undir ferlið: sköpun / túlkun / tjáning falla skilgreind verkefni nemenda, skissur, verkefni o.þ.h. Þessi verk skulu metin út frá markmiðum í lok áfangans. Meta á faglega þekkingu og tæknilega úrvinnslu eins og hún kemur fram í afurð. Undir ferlið: skynjun /greining /mat falla öll gögn nemenda sem tengjast þeirri færni, skrifleg greiningarverkefni, glósur og þáttaka nemenda í umræðum á önninni.
KHL 505  Lokaverkefni
  • Hugmyndavinna þar sem nemendur þróa hugmynd sína og gera vinnuteikningar og verkplan með tímaáætlun. Fjallað um höfundarrétt og siðfræði hönnunar. Nemendur velja sér markhóp og útfæra verk fyrir hann. Nemendur skilgreina verkefnið í samráði við kennara, þeir vinna sjálfstætt eða í litlum hópum, velja vinnsluaðferð og vinna verkið frá hugmynd til lokaútfærslu. Markmið: Að nemandi geti greint og gert grein fyrir ólíkum þörfum einstaklingsins í margbreytilegu samfélagi. Geti myndgert og formað hugmynd sína og rökstutt hana með tilliti til markhóps. Geti fullunnið verkið í samkvæmt settu verkplani og tímaáætlun. Geti rökstutt ákvarðanir sínar og fjallað um verkið út frá fagurfræðilegum forsendum. Námsmat: Æskilegt er að sköpun, túlkun og tjáning vegi u.þ.b. 2/3 af lokamati.  Skynjun, greining og mat 1/3. Undir ferlið: sköpun / túlkun / tjáning, falla skilgreind verkefni nemenda, skissur, verkefni o.þ.h. Þessi verk skulu metin út frá markmiðum í lok áfangans. Meta á faglega þekkingu og tæknilega úrvinnslu eins og hún kemur fram í afurð. Undir ferlið: skynjun /greiningu /mat falla öll gögn nemenda sem tengjast þeirri færni, skrifleg greiningarverkefni, glósur og þáttaka nemenda í umræðum á önninni.