Endurmenntun fyrir Leikskólakennara

Númer: 
79
Nánari upplýsingar: 
- ekki í boði
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Endurmenntun
Kennari: 
Elsa Dóróthea Gísladóttir og Hildigunnur Birgisdóttir
Stutt lýsing á námskeiði: 
Undanfarin ár hefur Myndlistaskólinn í Reykjavík átt í árangursríku samstarfi við Leikskólasvið Reykjavíkurborgar sem hefur meðal annars falist í því að ákveðnir leikskólar hafa komið með barnahópa í myndlistarnám í Myndlistaskólann. Verkefnið er tvíþætt og snýr annars vegar að börnunum en hins vegar að leikskólakennurum og starfsfólki leikskólanna. Markmiðið er annars vegar að gefa börnum á leikskólaaldri tækifæri til að kynnast námi í myndlistaskóla og veita þeim innsýn í töfraheim myndlistarinnar undir handleiðslu fagfólks á sviði myndlistar og hönnunar. Hins vegar er það endurmenntun leikskólakennara í myndlistarkennslu og að styðja þá við að auka myndlistarkennslu og skapandi starf í leikskólunum sjálfum. Endurmenntunarnámskeiðið byggir á reynslu þessa samstarfs.
Einingar: 
0
Kennslustaður: 
Hringbraut 121