Endurmenntun: Víðátta og Rjóður
Námskeiðið fer fram í Norræna Húsinu.
Námskeiðið veitir innsýn í aðferðafræði, nálgun og áherslur listbúða og farið verður í valin verkefni úr þeim í verklegum æfingum á staðnum. Kennarar eru Guja Dögg Hauksdóttir, arkitekt og Þorbjörg Þorvaldsdóttir, myndlistarmaður og deildarstjóri barna- og unglingadeildar Myndlistaskólans. Guja Dögg hefur mótað og tekið þátt í listbúðunum þremur en saman hafa þær m.a. skipulagt og unnið syrpu listbúða um byggingarlist og borgarskipulag fyrir grunnskólanema í Myndlistaskólanum sem hlutu viðurkenningu Skipulagsfræðingafélags Íslands. Sýningin hvetur til verkefnavinnu í umhverfinu við Norræna Húsið, og er tilvalin fyrir grunnskólakennara og nemendur þeirra. Námskeiðið er góður undirbúningur fyrir heimsókn á sýninguna en gefur einnig innblástur í verkefnavinnu í umhverfi skólans eða annars staðar.






