Form, rými og hönnun
Tvívíð og Þrívíð verkefni unnin frá hugmynd til útfærslu. Skilningur nemenda á meginatriðum myndbyggingar dýpkaður og næmi fyrir mismunandi eiginleikum efna eflt. Hönnunarsagan skoðuð í tengslum við verkefnin. Þjálfun í þeirri skissu- og hugmyndavinnu sem öll myndræn sköpun byggist á, hvort sem um er að ræða hönnun eða frjálsa myndlist. Námslok miðast við 80% mætingu.
- Páskafrí 2.- 9.april 2012. Sumardagurinn fyrsti, 19.apríl 2012.
Námsskrá: Form og rými. Myndlist Arkitektúr Hönnun. TF1. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. ÁfangalýsingÍ áfanganum er unnið með grunnforsendum tvívíðrar myndbyggingar og þrívíðrar hönnunar. Fjölbreyttar æfingar eru gerðar til að kanna myndflötinn, skoðað hvernig form og hlutföll hafa áhrif á jafnvægi hans og áhersla breytist eftir því hvernig lína og form skipta fletinum upp. Unnið er með hrynjanda, jafnvægi/ójafnvægi, léttleika /þunga, og kannað með endurtekningu hvernig hægt er að byggja upp mynstur á fleti.Módernisminn í lista- hönnunar og byggingarlistasögu lagður til grundvallar verkefnum.Verkefnin þróast frá tvívíðri formfræði yfir í þrívídd og niðurstöður tvívíðra æfinga nýtast sem grunnur að frekari könnunum á formi og hlutföllum í rými.Nemendur læra meginatriði myndbyggingar í rými og þróa hugmyndir sínar áfram með tilliti til þess efniviðar sem við á hverju sinni. Að lokum vinna nemendur tillögur að einföldum hönnunarverkefnum.Í tvívíðum æfingum er unnið með óhlutbundin form, svartan lit á hvítt og í þrívíðum verkefnum er byggt úr einföldum efnum, pappa, við og vír.ÁfangamarkmiðNemandi- hafi kannað grunnforsendur myndbyggingar.- þekki hugtök eins og jákvætt/neikvætt - geti metið vægi forma og hlutfalla í myndbyggingu.- geti túlkað hugmyndir með beitingu forma og hlutfalla í mynd.- þekki áhrif línu og flata í myndbyggingu.- geti á meðvitaðan hátt notað þau áhrif í myndbyggingu.- geti yfirfært niðurstöðu kannana sinna yfir í þrívídd.- geti byggt upp einföld verk sem byggist á virkni í þrívídd.NámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni .






