Framhaldsskólastig - FULLT NÁM

Við Myndlistaskólann í Reykjavík eru nú starfræktar þrjár deildir á framhaldsskólastigi þar sem kennsla miðast við fullt nám í dagskóla: Myndlistar- og hönnunarsvið, Keramik kjörsvið og Sjónlistadeild.

Myndlistar- og hönnunarsvið / fornám er 39 eininga nám í grunnatriðum sjónlista sem lokið er á einu ári í dagskóla. Námið undirbýr nemendur fyrir framhaldsnám í listgreinum í sérskólum og skólum á háskólastigi og veitir þeim trausta grunnmenntun fyrir fjölbreyttar greinar sjónlista.

Keramik kjörsvið, Myndlistaskólinn í Reykjavík og Tækniskólinn-skóli atvinnulífsins starfa saman að 21 eininga námi í grundvallatriðum í keramik, sem lokið er á einu misseri í dagskóla. Kennslan fer að öllu leyti fram á verkstæðum Myndlistaskólans og er námið grunnur að frekara námi í hönnun, listhandverki eða keramik í sérskólum eða á háskólastigi.

Sjónlistadeild Myndlistaskólans í Reykjavík er nýtt fjögurra anna, 140 (fein) eininga nám í sjónlistum sem lokið er á tveimur árum í dagskóla. Inntökuskilyrði eru 60 fein einingar úr öðrum framhaldsskólum  Að tveimur árum loknum útskrifast nemendur með stúdentspróf úr Sjónlistadeild (listnámsbraut). Áhersla er lögð á skapandi hugsun við  listnám og menningar-, hugmynda- og listasögu og samþættingu kjarnagreina; íslensku, ensku og stærðfræði.