Frjáls málun
Ætlað nemendum með töluverða reynslu af málaralistinni sem geta eða vilja vinna sjálfstætt í listsköpun sinni en jafnframt eiga þess kost að leita leiðsagnar. Ekki eru lögð fyrir sérstök verkefni og er kennari er á staðnum í 10 skipti af 14. Kennari leiðbeinir nemendum í þeirra sjálfsprottnu verkefnum. Fjallað um tæknileg atriði s.s. liti og í blöndunarefni, grunna og fleira. Inn í kennsluna verða fléttuð dæmi og fróðleikur úr listasögunni eftir því sem við á. Kennari verður í 10 skipti en í 4 skipti vinna nemendur sjálfstætt. Námslok miðast við 80% mætingu.Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012. Páskafrí 2.-9.april 2012.
Námsskrá: MF1 Frjáls málun. Undanfarar: TG1 -Teikning 1, MG1 -Teikning 2, MG2 - Málun 2, eða annað sambærilegt. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar..ÁfangalýsingÍ frjálsri málun geta nemendur með misjafnlega mikinn undirbúning stundað nám. Fjallað er um efnasamsetningu lita og íblöndunarefna og þau efni sem málað er á. Einnig er fræðsla um pensla og önnur verkfæri tengd málun. Í upphafi áfanga eru lögð fyrir verkefni þar sem reynir á teikni- og myndskipunarkunnáttu ásamt meðferð olíulita. Einnig eru frjáls viðfangsefni. Nemendum er leiðbeint eftir eðli viðfangsefnis.ÁfangamarkmiðNemandi- kynnist helstu efnum sem notuð eru við olíumálun- nýti sér teiknikunnáttu sína, þekkingu á fjarvíddarreglum og myndbyggingu - nái valdi á blöndun lita- geti nýtt sér litasamsetningar á markvissann hátt - geti þróað hugmynd og útfært í málverkNámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






