Gróðurhús hugmyndanna.
Númer:
40
Nánari upplýsingar:
- ekki í boði
Deild:
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur:
Form Rými
Kennari:
Hildur Steinþórsdóttir og Eygló Harðardóttir Stutt lýsing á námskeiði:
Námskeiðið byggir á hugmynda- og skissuvinnu sem er mikilvægur grunnur í öllum skapandi greinum. Skilningur nemenda á eigin vinnuferli er dýpkaður með fjölbreyttum æfingum og vettvangsferðum. Nemendur tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð í hugmyndavinnu og úrvinnslu og þjálfa færni í að skynja samhengi í umhverfi sínu. Námskeiðið hentar vel byrjendum sem og lengra komnum og er tilvalinn undirbúningur fyrir þá sem hyggja á listnám á háskólastigi hvort heldur er myndlist, hönnun eða arkitektúr.Áfangalýsing.
- BORGARRÝMI: Skissuvinna og skrásetning í ýmsa miðla svo sem teikningu, ljósmyndun og texta. Fjölbreyttar æfingar til að örva hugmyndaflæði og kynnast nýjum vinnuaðferðum. Unnið verður með hugtök eins og samhengi, borgarrými, minni, hreyfingu, lífræn og geometrísk form.
- LISTAVERK: Nemendur tengja sig við listasöguna með ýmsum æfingum, upplifa / rannsaka verk úr nánasta umhverfi sínu á markvissan hátt. Unnið verður með hugtök s.s. inntak, túlkun, efniskennd og staðsetningu.
- ÚRVINNSLA: Unnið með möguleika byggingarlistar, rýmis og umhverfis, út frá fyrri rannsóknarvinnu nemenda. Úrvinnsluleiðirnar verða fjölbreyttar og tilraunakenndar. Unnið verður með hugtök eins og samtengingar, rými, birtu, litaskynjun og andstæður.Nemendur halda utan um öll verkefni námskeiðsins og binda inn í skissubók sem getur nýst í ferilmöppu.
- Áfangamarkmið. Að nemandi sé fær um að tjá hugmyndir sínar í mismunandi miðlum og dýpki skilning sinn á efnisnotkun.Að nemandi geri sér grein fyrir hugmyndafræði listamanna, geti brugðist við og unnið sjálfstætt út frá því. Að nemandi kanni umhverfi sitt og skynji þar með uppbyggingu borgarrýmis út frá eigin forsendumAð nemandi efli skilning sinn á grunnþáttum rýmisskynjunar, ljóss/skugga, lita og hlutfalla.
Hámarksfjöldi nemenda:
24 Efniskaup:
Allt efni er innifalið en nemendur eru beðnir um að koma með eigin ljósmyndavélar, t.d. stafrænar vélar eða myndavélar í farsímum.
Fjöldi kennsluvikna:
12 vikur
Kennslustundir:
52
Einingar:
2
Kennslustaður:
Hringbraut 121 





