Grundvallaratriði í keramiki - KEV173
Nemendur kynnist efninu, nauðsynlegum undirbúningi og verklagi við mótunaraðferðir, handverkfærum, rennslu og notkun rennibekks. Nemandi kynnist aðferðum við brennslu á leir. Nemendur fái innsýn í möguleika á notkun leirverka í ýmis konar samhengi. Lögð er áhersla á notkun skissubóka og hugmyndavinnu í öllum þáttum áfangans. Nemandi nái í glímu sinni við verkefni áfangans að vaxa og þroska hvað varðar form- og rýmisskynjun, efnisþekkingu, verklag og vinnubrögð og vaxi í meðvitund um nánasta umhverfi sitt, náttúru þess og menningu. Gefin verður einkunn og umsögn. Námslok miðast við 80% mætingu.
Námsskrá: Grundvallaratriði í keramiki. KEV17.3 Kennslustundir 78. Undanfari TG1.3 KM1.2 eða KR1..Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.2ÁfangalýsingÍ áfanganum er farið í grunnþætti keramik mótunar og rennslu. Nemendur kynnast þeim efnum sem unnið er með í keramik vinnslu, kynnast mismunandi aðferðum við leirmótun, fá tilfinningu fyrir efninu og möguleikum þess. Rætt er um notkun áhalda og nemendur læra að beita því áhaldi sem við á hverju sinni. Nemendur vinna með steinleir og jarðleir auk þess sem þeir fræðast um önnur efni sem við koma faginu. Í mótunarhluta námskeiðsins eru kenndar helstu aðferðir við handmótun leirs, plötuaðferð og slönguaðferð. Mótuð eru form og áhersla lögð á skoðun innra og ytra rýmis. Í rennsluhluta námskeiðsins er lögð áhersla á að nemandi nái nokkurri færni við að miðja leir á rennibekk, læri að renna einföld lág form og læri að tileinka sér notkun á vinnuteikningum. Áhersla er lögð á notkun skissubókar við hugmyndavinnu.Í áfanganum er mikilvægt að nemandi temji sér vönduð vinnubrögð.Haldnir verða fyrirlestrar á námstímanum sem nemendur nota sem grunn að skriflegu verkefni.ÁfangamarkmiðNemandi- viti hvað felst í mun á hábrenndum og lágbrenndum leir.- nái færni í handmótun leirs og geti valið þá mótunaraðferð sem hentar hverju sinni.- geti mótað verk eftir eigin vinnuteikningu.- geti rennt einfalt opið form eftir vinnuteikningu.- geti nýtt sér skissubók í hugmyndavinnu.- geti tekið afstöðu til eigin verka og annarra og tekið þátt í umræðu.NámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






