InDesign-Photoshop
Hönnun og myndvinnsla. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kynna sér möguleika hönnunar- og myndvinnsluforritanna InDesign og Photoshop. Farið verður yfir helstu möguleika jafnframt því sem nemendur leysa verkefni upp á eigin spýtur með aðstoð kennara. Reikna má með nokkuð jafnri áherslu á bæði forritin, þó ívið meiri á InDesign. Þessi tvö forrit eru frá sama framleiðanda og mjög samtvinnuð í vinnslu. Markmiðið er að eftir námskeiðið hafi nemendur fengið nægilega undirstöðuþekkingu til að takast á við tvívíð grafísk hönnunarverkefni s.s. bæklinga, plaköt, bækur ofl. með InDesign og hafi náð tökum á undirstöðuatriðum í myndvinnslu með Photoshop.
Kennsla:
mán. 27.2.kl.17.30-21.10
þri. 28.2.kl.17.30-21.10
mið. 29.2.kl.17.30-21.10
fim. 1.3. kl.17.30-21.10
lau. 3.3. kl.10.00-13.40
Námslok miðast við 80% mætingu.






