Keramik kjörsvið - FULLT NÁM

Kennt í samstarfi við Tækniskólann.

Keramikkjörsvið á Listnámsbraut Tækniskólans er 105 eininga nám. Hluti námsins, 21 eining, er kenndur á einni önn í samfelldu námi á keramikverkstæði Myndlistaskólans í Reykjavík. Í þeim hluta námsins einbeitir nemandinn sér að þrívíðri formskoðun, þar sem unnið er með form og rými á margvíslegan hátt og  kenndar eru mótunaraðferðir og meðferð leirs. Áhersla er lögð á skapandi hugmyndavinnu og  aðferðir  til að koma eigin hugmyndun í framkvæmd. Með náminu er lagður grunnur að listháskólanámi á sviði þrívíðrar hönnunar, myndlistar  eða frekara námi í keramiki.

Keramikkjörsvið á Listnámsbraut er skipulagt sem þriggja ára námsbraut en nemendur sem þess óska geta bætt við sig einingum í bóklegum greinum og aflað sér þannig stúdentsprófsréttinda til náms á háskólastigi. Þeir sem þegar hafa lokið almennu stúdentsprófi eða hliðstæðu starfsnámi geta stytt námstíma sinn um allt að helming.

Nánari upplýsingar um námið og innritun hjá deildarstjóra Keramikkjörsviðs: Ólöf Erla Bjarnadóttir keramik@myndlistaskolinn.is og í síma 5614993 (bein lína) eða gsm 8925544.