Leirkerarennsla

Númer: 
45
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Keramik
Kennari: 
Guðbjörg Káradóttir
Stutt lýsing á námskeiði: 

Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram með sýnikennslu. Unnið með margvísleg form og formskyn nemandans þjálfað. Hver nemandi fær til afnota rennibekk. Kynnt er notkun glerunga og leiðbeint um hverjir henta best renndum hlutum. Nemandinn kynnist heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu. Við leggjum okkur fram um að skapa stemningu sem likist helst vinnu á keramikverkstæði þar sem hver nemandi vinnur að sínum verkefnum sem skipulögð eru í samráði við kennara. Mikið er lagt uppúr því að nemandinn fái tilfinningu fyrir leirnum sem efni og efnivið og nái að finna fyrir framförum hjá sjálfum sér. Námslok miðast við 80% mætingu.

  • Páskafrí 2.- 9.april 2012.
Hámarksfjöldi nemenda: 
10
Verð: 
Kr. 73,300
Upphafsdagur vorannar: 
mánudagur, 16 janúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
mánudagur, 30 apríl, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
mánud.
Kennslutími: 
17.30-20.15
Efniskaup: 
Allt efni er innifalið.
Fjöldi kennsluvikna: 
14 vikur
Kennslustundir: 
52
Einingar: 
2
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Keramik, rennsla. KR1. Undanfari TG1-Teikning 1 eða annað sambærilegt. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Ágangalýsing. Kennd eru undirstöðuatriði í meðferð leirs. Að hnoða leir og leirrennsla á rafknúnum rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram við sýnikennslu. Nemandi æfir sig í að ná valdi á undirstöðuatriðum rennslu, s.s. að miðja leir á rennibekk og í afrennslu leirforma. Formskyn nemandans er þjálfað markvisst með vinnslu margvíslegra en einfaldra forma, einnig eru kynnt verk valinna listamanna og formmótun þeirra skoðuð. Áfangamarkmið Nemandi - kynnist eiginleikum leirsins - þekki eiginleika leirsins í mismunandi þurrk ástandi - tileinki sér aðferðir við leirhnoðun - nái að miðja leir á rennibekk - nái að renna einföld form - kunni að renna af og ganga frá leirhlut fyrir brennslu - hafi í gegnum verk ólíkra listamanna kynnst mismunandi formgerðum og handbragði. Námsmat. Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.