Listnám 60+ / Grafarvogi
Kennsla fer fram í vinnustofu Brynhildar Þorgeirsdóttur myndlistamanns Bakkastöðum 113, 112 Rvk.
Námið er ætlað þeim sem komnir eru yfir miðjan aldur og hafa áhuga á listnámi, en eru með litla sem enga grunnmenntun í myndsköpun. Nemendur munu kynnast undirstöðuatriðum í teikningu þar sem farið verður í einfalda fjarvídd, undirstöðuatriði í hluta- og formteikningu og umhverfisteikningu. Einnig kynnast nemendur meðferð vatnsleysanlegra lita. Verkefni munu auka færni nemenda til myndsköpunar, dýpka skynjun þeirra á umhverfið og opna á frjóa samræðu um listir. Listasagan verður ofin inn í verkefni og samræður milli nemenda og kennara.






