Litaskynjun

Númer: 
29
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Málun
Kennari: 
Eygló Harðardóttir
Stutt lýsing á námskeiði: 

Verklegar æfingar þar sem áhrif lita, merking þeirra og notkun er könnuð og fléttuð við listasögu. Unnið er með mismunandi gerðir litarefna. Námskeiðið er góð undirstaða fyrir nemendur sem hafa hug á áföngum í málun og einnig mikilvægur þáttur í almennum undirbúningi fyrir frekara nám á sviði hönnunar eða myndlistar, hvort heldur um er að ræða tómstundanám eða háskólanám. Fjallað er um skynjun okkar á litum, áhrif þeirra, vægi og merkingu í umhverfi og listum. Kynntar forsendur ljóssins í lit og sagt frá helstu kenningum litafræðinnar t.d. Goethe og Itten. Úr frumlitunum blanda nemendur litahring og kanna á kerfisbundinn hátt áhrifamátt lita í tengslum við andstæðuliti og heita/ kalda liti. Undirstöðuatriði litafræðinnar eru kennd með verklegum æfingum og tilraunir gerðar með tón, blæ og ljósmagn í lit. Á síðari hluta námskeiðs eru unnin með margvíslegum miðlum verkefni þar sem reynir á persónulega túlkun nemenda í litanotkun, litasamspil og tilfinningabundin túlkun lita. Námslok miðast við 80% mætingu.

Hámarksfjöldi nemenda: 
12
Verð: 
Kr. 64,500
Upphafsdagur vorannar: 
mánudagur, 30 janúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
mánudagur, 23 apríl, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
mánud.
Kennslutími: 
17:30-20:55
Efniskaup: 
Efni er að hluta innifalið m.a. allur pappír en nemendur þurfa að koma með 2 pensla í fyrsta tíma og síðar liti í samráði við kennara. PENSLAR: 2 flatir penslar með stuttu skafti fyrir gouach liti númer 10 og 12. Ágætir penslar eru t.d. da Vinci - Nova synthetics (fást í versluninni Litir og föndur) og Lukas Goldtoray (fást í Litalandi).
Fjöldi kennsluvikna: 
11 vikur
Kennslustundir: 
52
Einingar: 
2
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Litaskynjun. TL1.2. Undanfari TG1.3 (eða annað sambærilegt). Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Áfangalýsing Í þessum áfanga er fjallað um skynjun okkar á litum, áhrifamætti þeirra, vægi og merkingu í umhverfi og listum. Fjallað er um forsendur ljóssins í lit og sagt frá helstu kenningum litafræðinnar t.d. Goethe og Itten. Úr fumlitunum blanda nemendur litahring og kanna á kerfisbundinn hátt áhrifamátt lita í tengslum við andstæðuliti og heita/ kalda liti. Undirstöðuatriði litafræðinnar eru kennd með verklegum æfingum og tilraunir gerðar með tón, blæ og ljósmagn í lit. Á síðari hluta námskeiðs eru unnin með margvíslegum miðlum verkefni þar sem reynir á persónulega túlkun nemenda í litanotkun, litasamspili og tilfinningabundna merkingu lita. Áfangamarkmið Nemandi - efli skynjun sína á lit. - sé fær um að greina innbyrðis blöndun lita. - hafi vald á litablöndun og geti greint áhrif litasamsetninga í mismunandi samhengi. - geti nýtt sér tón, blæ og ljósmagn lita til að tjá hugmyndir sínar. - hafi kynnst helstu kenningum er varða litaskynjun. Námsmat. Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.