Ljósmyndun stafræn
Kennt er á mánudögum kl.17:30 - 20:20 og laugardögum kl.09.00 - 14:00. Í fyrsta tíma er nauðsynlegt að nemendur komi með sína bestu ljósmynd til dagsins í dag, stafræna myndavél og einbeittan vilja til að bæta sig! Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði stafrænnar ljósmyndunar og er markmið námsins að nemendur bæti við tæknilega kunnáttu og listræna getu. Í tæknilega hluta námsins verður nemendum kennt á stillingar á myndavélinni, hvernig á að hlaða niður myndum og vista og réttan hátt, hvernig megi “laga” myndir og vinna stafrænar skrár sem nýttar eru í mismunandi tilgangi (tölvupóstar, netvinnslu, skjávarpa og fleira) og farið verður í útprentun mynda. Skoðað verður hvernig nemendur geta notað ljósmyndir sem listrænan miðil – bæði sem stakar myndir þar sem myndbygging og sjónarhorn eru skoðuð og eins hvernig röð mynda getur sagt áhrifaríka sögu. Nemendur munu kanna, ræða og rannsaka stakar myndir og hvernig maður tekur betri myndir!Áfangamarkmið.Nemandi- hafi skilning á ljósmyndavinnslu í tölvu - kunni að taka myndir á ljósmyndavél við ólíkar aðstæður- kunni skil á áhrifum ljósops á skerpuvídd linsu á dýpt myndar- geti skilgreint samband á milli víddar linsu og dýpt myndflatar- kunni að stilla tökuhraða með tilliti til myndatöku- kunni að ganga frá ljósmyndum til sýningar og kynningar á stafrænu formi.- geri sér grein fyrir áhrifum mismunandi myndatöku og uppbyggingar myndar á merkingu ljósmyndar. Námslok miðast við 80% mætingu.
Námsskrá: Stafræn ljósmyndun - LJ2. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Í fyrsta tíma er nauðsynlegt að nemendur komi með sína bestu ljósmynd til dagsins í dag, stafræna myndavél og einbeittan vilja til að bæta sig! Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði stafrænnar ljósmyndunar og er markmið námsins að nemendur bæti við tæknilega kunnáttu og listræna getu. Í tæknilega hluta námsins verður nemendum kennt á stillingar á myndavélinni, hvernig á að hlaða niður myndum og vista og réttan hátt, hvernig megi “laga” myndir og vinna stafrænar skrár sem nýttar eru í mismunandi tilgangi (tölvupóstar, netvinnslu, skjávarpa og fleira) og farið verður í útprentun mynda. Skoðað verður hvernig nemendur geta notað ljósmyndir sem listrænan miðil – bæði sem stakar myndir þar sem myndbygging og sjónarhorn eru skoðuð og eins hvernig röð mynda getur sagt áhrifaríka sögu. Nemendur munu kanna, ræða og rannsaka stakar myndir og hvernig maður tekur betri myndir!Áfangamarkmið.Nemandi- hafi skilning á ljósmyndavinnslu í tölvu - kunni að taka myndir á ljósmyndavél við ólíkar aðstæður- kunni skil á áhrifum ljósops á skerpuvídd linsu á dýpt myndar- geti skilgreint samband á milli víddar linsu og dýpt myndflatar- kunni að stilla tökuhraða með tilliti til myndatöku- kunni að ganga frá ljósmyndum til sýningar og kynningar á stafrænu formi.- geri sér grein fyrir áhrifum mismunandi myndatöku og uppbyggingar myndar á merkingu ljósmyndar.Námsmat.Við námsmat er tekið tillit til markmiða áfangans, hvernig til hefur tekist. Matið er að ¾ hluta mat á ljósmyndum, sem nemandi tekur á kennslutíma1. frumleika og sjálfstæði hans við ljósmyndatöku viðfangsefna að eigin vali 2. hvernig staðið er að ljósmyndun á eigin verkum3. vinna í stúdíoi og kunnátta í úrvinnslu og prentun.






