Ljósmyndun svart / hvít

Númer: 
58
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Ljósmyndun
Kennari: 
Erla Stefánsdóttir og Vigfús Birgisson
Stutt lýsing á námskeiði: 

Kennsla fer fram tvisvar í viku á laugardögum kl.09.30-14:30 og þriðjudögum kl.17:30-20:00. Námskeiðið er góður grunnur fyrir þá sem ætla sér í frekara listnám en einnig fyrir þá sem eru með mikinn ljósmyndaáhuga og vilja auka kunnáttu sína. Námsefni er viðamikið, áhugavert og krefjandi. Farið í grunn hefðbundinnar filmuljósmyndunar. Nemendur taka myndir á svart/hvítar filmur og framkalla. Kennd er prentun mynda í myrkraherbergi og skoða nemendur myndirnar saman og ræða. Ítarlega er farið í myndbyggingu og stúdíóljósmyndun og skoðuð verk þekktra ljósmyndara. Kunnur ljósmyndari verður með kynningu á verkum sínum. Farið er í vettvangsferðir. Vakin er athygli á að Námskrárlýsing MYL-222 er að nokkru leyti úrelt og stendur til að endurskoða hana. Námslok miðast við 80% mætingu.

Hámarksfjöldi nemenda: 
8
Verð: 
Kr. 64,500
Upphafsdagur vorannar: 
laugardagur, 4 febrúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
þriðjudagur, 6 mars, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
lau og þri
Kennslutími: 
laugardaga 09.30-14.30 / þriðjudaga 17.30-20.00
Efniskaup: 
Nemendur þurfa að koma með filmu í fyrsta tíma ásamt ljósmyndapappír. Filman á að vera Ilford HP5 og pappírinn í stærð 8"x10" inches. Nauðsynlegt er að nemendur komi með myndavél.
Fjöldi kennsluvikna: 
5 vikur /10 skipti
Kennslustundir: 
52
Einingar: 
2
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Ljósmyndun 1 (sv/hv) LM1. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Áfangalýsing. Í áfanganum læra nemendur grunnatriði ljósmyndunar. Nemendur taka ljósmyndir, læra framköllun, stækka myndir og ganga frá þeim til kynningar. Í áfanganum kynnast nemendur í verklegum æfingum grunnþáttum og grunnhugtökum ljósmyndunar s.s. ljósopi, lokahraða, dýptarskerpu. Nemendur kynnast mismunandi myndavélum og mismunandi tegundum af filmum. Nemendur framkalla svart/hvítar filmur; læra að prentun mynda í ljósmyndaveri; kynnast mismunandi tegunum af lýsingu og litafræði í ljósmyndun; kynnast töku mynda á slidesfilmur og kynna þar eigin verkefni. Farið verður yfir sögu ljósmyndunar og kynnt verk ýmissa ljósmyndara. Nemendur velja sér ljósmyndara og fjalla um verk þeirra í skriflegum æfingum. Áfangamarkmið. Nemandi - kunni helstu hugtök og heiti innan ljósmyndunar ( ljósop, lokahraði, filmuhraði, kontrast, o.s.frv.) - kunni skil á hinum ýmsu tegundum lýsingar s.s. chirascuro lýsing, flöt lýsing, stefnumörkuð lýsing - hafi kynnst helstu atriðum í litafræði ljósmyndunar - sýni með eigin ljósmyndun mynddæmi, sem bera vott um hugmyndir og persónulega nálgun á viðfangsefni - skili í skriflegum úrlausnum persónulegu mati á fagurfræðilegum atriðum í ljósmyndun Námsmat: Námslok miðast við 80% mætingu. Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þátttöku nemenda í umræðum á önninni.