Ljósmyndun sv/hv II

Númer: 
60
Nánari upplýsingar: 
- ekki í boði
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Ljósmyndun
Kennari: 
Vigfús Birgisson og Erla Stefánsdóttir
Stutt lýsing á námskeiði: 

Kennsla fer fram tvisvar í viku á laugardögum kl.09.30 -14:30 og þriðjudögum kl.17:30 - 20:00.  Námskeiðið er framhaldsnámskeið ætlað þeim sem lokið hafa fyrri áfanga í Ljósmyndun í Myndlistaskólanum eða hafa annað sambærilegt nám eða undirbúning. Námið byggist á myndatökum í vettvangsferðum og úrvinnslu mynda í myrkraherbergi. Farið verður ítarlega í myndbyggingu með markvissri þjálfun í myndatöku, myndskoðun og -greiningu. Í vettvangsferðum í laugardagtímum er lagt upp með ákveðin myndefna-markmið "skotmörk" að leiðarljósi s.s. arkitektúr eða landslag. Í mánudagstímum eru auk vinnu í myrkraherbergi, hvetjandi innlegg og kynningar og umræður um myndir nemenda og annara ljósmyndara. Námslok miðast við 80% mætingu.

  • Páskafrí 2.- 9.april 2012.
Hámarksfjöldi nemenda: 
8
Verð: 
Kr. 64,500
Upphafsdagur vorannar: 
laugardagur, 17 mars, 2012
Lokadagur vorannar: 
þriðjudagur, 24 apríl, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
laugardaga og þriðjudaga
Kennslutími: 
laugardaga 09.30-14.30 / þriðjudaga 17.30-20.00
Efniskaup: 
Nemendur þurfa að koma með sv/hv filmu og myndavél í fyrsta tímann.
Fjöldi kennsluvikna: 
5 vikur / 10 skipti.
Kennslustundir: 
52
Einingar: 
2
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Ljósmyndun 3 - FLJ.372. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Áfangalýsing. Í ljósmyndaáfanga 3 er fjallað um ljósmyndina í umhverfi og myndlist samtímans. Nemandi vinnur með hina mismunandi sýn sem myndin gefur af umheiminum og áhrif myndbyggingar í þá veru. Ætlast er til að nemandi öðlist nokkra reynslu í umræðum um ljósmyndina og áhrif hennar og notkun í umhverfi listheims, myndlist samtímans, í félagslegu samhengi, við mótun skoðana á sviðum þjóðfélagsins, s.s. áhrif í auglýsingum, við mótun afstöðu til félagslegra þátta samfélagsins o. fl. Nemendur ljósmynda eigin verk í þeim tilgangi að fá þjálfun í stúdíó-vinnu ljósmyndunar, en einnig í þeim tilgangi að safna heimildum um viðfangsefni í námi. Í umræðum um ljósmyndina er lögð áhersla á að nemendur geti tjáð sig um verk annarra og sín eigin verk, séu virkir í umræðu og taki sjálfstæðar ákvarðanir og geti fært rök fyrir þeim. Áfangamarkmið. Ljósmyndun: Að nemandi - vinni heildstætt ljósmyndaverkefni út frá eigin hugmynd á filmu, stafræna myndavél eða myndbandsverk - hafi unnið við og aukið skilning sinn á fagurfræðilegum forsendum við að skapa ljósmyndasamsetningar með vinnu og greiningu - geti lagt fram verk sín, gert grein fyrir vinnuferli og tekið afstöðu til eigin úrlausna og annara Námsmat. Verklegt 100%.