Málþing Knowhow II

Dagskrá málþing knowhow2

GETUM VIÐ BÆTT LISTRÆNT STARFSNÁM OG AUKIÐ TENGSL ÞESS VIÐ ATVINNULÍFIÐ?

Á síðustu árum hefur framleiðsla í síauknum mæli færst frá Evrópu. Um leið hafa kröfur orðið háværari um betri og hugvitasamlegri nýtingu hráefna á þeim stað þar sem þeirra er aflað. Í dag er samsetning á útflutningi  Íslendinga svipuð og þjóða sem hafa mun lægra menntunarstig. Þó hafa útflutningsverðmæti tölvuleikjafyrirtækja vaxið hraðar en annarra greina á síðustu árum. Hvernig framleiðum við áhugaverðari og framsæknari vöru úr íslenskum hráefnum, byggða á kunnáttusamlegu verklagi, sögu okkar og arfleifð?

DAGSKRÁ Föstudaginn, 16.september kl.14:00 -17:00 SKAPANDI VERKLAG – SKÓLI/SAMFÉLAG. Hvernig getur kennsla skapandi greina mætt þörfum samfélagsins?


14:00-14:15       
GUÐRÚN NORDAL (IS) forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar og formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs.

14:15 – 14:45
INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR (IS) skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík (MíR) ÁSAMT NEMENDUM.

           -Kynning á verkefninu Verklag2 / Knowhow2
            -Kynning á tveimur nýjum námsbrautum skólans í textíl og teikningu
            -Sjónarhorn nemenda

14:45 – 15:05       
BENJAMIN BHONE (IS) Listrænn stjórnandi CCP

            -Þróun konsepta – hvernig hver hvað?
            -Hvert er hlutverk teiknara í fyrirtæki eins og CCP?
            -Teiknifærni í samtímanum.
            -Ný námsbraut MíR og Tækniskólans, skóla atvinnulífsins í teikningu.


15:05 – 15:25       
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR (IS) Fatahönnuður
           
            -Að snerta til að hanna
            -Hvaða þekkingu og færni þarf í textíliðnaði á Íslandi?
            -Ný námsbraut MíR og Tskóla í textíl

15:25 – 15:45 STUTT HLÉ

15:45 – 16:00    
STEVE OGDEN (UK) deildarstjóri hönnunar í háskólanum í Cumbriu, Englandi

            -Tengsl skóla og atvinnulífs í Bretlandi
            -Þróun undanfarinna ára

16:00 - 16:40       
PALLBORÐSUMRÆÐUR. Þátttakendur eru fyrirlesarar auk Sigurjóns Mýrdal, deildarstjóri Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Baldur Gíslasonar, skólameistari Tækniskólans, og fulltrúa frá Hönnunarmiðstöð Íslands. Spurningar úr sal.

16:40 – 17:00       
HERIOT WATT UNIVERSITY (UK) Alison Harley kynnir sýninguna Teikning og textíll - tengdar leiðir sem eru til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands. Léttar veitingar.


DAGSKRÁ Laugardaginn 17. september kl 10:00 -13:00 “HUGSANDI HENDUR” – Í TÆKNIVÆDDUM SAMTÍMA.  Þróun verklags, möguleikar og áskoranir á tímum tækniþróunar!

10:00 – 10:50       
JUHANI PALLASMAA (FI) Heimsþekktur finnskur arkitekt og höfundur bókanna The Thinking Hand og The Eyes of the Skin - Architecture and the Senses.

            -Hin hugsandi hönd
            -Hvernig hafa eiginleikar efniviðar og verklag áhrif á list og hönnun?
            -Hvert er hlutverk efniviðar og verklags í listaskólum?

10:50 – 11:10        STUTT HLÉ

11:10 – 11:40       
HILDE HAUAN (NO) myndlistakona og deildarstjóri textíldeildar Listaháskólans í Bergen, Noregi.

            -Hvaða möguleikar hafa skapast í textílhönnun í ljósi nýrrar tækni?
            -Í hvaða átt eru textíldeildir á vesturlöndum að þróast?

11:40 – 12:10       
BRYNHILDUR PÁLSDÓTTIR(IS) vöruhönnuður og kennari við Myndlistaskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands

            -Möguleikar staðbundina efna og aðferðar

12:10 – 13:00       
PALLBORÐSUMRÆÐUR. Þátttakendur eru: Jóhannes Þórðarson, deildarstjóri hönnunardeildar Listaháskóla Íslands, Berglind Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Ian M Mc Innes frá Heriot Watt háskólanum (UK). Spurningar úr sal.

ÓLÖF GERÐUR SIGFÚSDÓTTIR, forstöðumaður Rannsóknarþjónustu Lista-háskóla Íslands er kynnir ráðstefnunnar og stjórnar pallborðsumræðum báða dagana.
SKRÁNING.
MÁLÞINGIÐ ER ÖLLUM OPIÐ OG FER FRAM Á ENSKU.  ATHUGIÐ TAKMARKAÐAN SÆTAFJÖLDA. SKRÁNING FYRIR 9 SEPT 2011 hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík á netfang malthing@mir.is