Málun 1 morguntímar
Námskeiðið er ætlað byrjendum í málaralist sem hafa undirstöðu í teiknun. Áhöld, efni og grundvallaratriði olíumálunar og litablöndunar kynnt. Einfaldar uppstillingar í fyrstu en smám saman farið í nákvæmari vinnubrögð og frjálsari og persónulegri tjáningu. Unnið með umhverfi innanhúss og þróað í abstrakt. Inn í kennsluna verða fléttuð dæmi og fróðleikur úr listasögunni eftir því sem við á. Mikilvægt er að nemendur hafi þegar lokið a.m.k. einum teikniáfanga t.d. Teikningu 1 eða öðru sambærilegu. Kunnátta í meðferð og blöndun litatóna eykur árangur á námskeiðinu en er ekki skilyrði.Námslok miðast við 80% mætingu.Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012. Páskafrí 2.-9.april 2012.
Námskrá: Málun 1. MG1. 4 Undanfari TG1.3-Teikning 1 og TG2.3-Teikning 2 (eða annað sambærilegt). Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.ÁfangalýsingKennd eru undirstöðuatriði í meðferð olíulita, kynnt eru áhöld efni og íblöndunarefni. Grundvallaratriði litablöndunar eru tekin fyrir með æfingum. Í fyrstu er unnið með einfaldar uppstillingar en í síðari hluta námskeiðs vaxa kröfur um nákvæmni í meðferð lita og teikningu. Lögð er áhersla á að þjálfa litaskyn nemenda. Gert er ráð fyrir að nemendur sæki tvær annir samfellt.Nemendum er kynnt þróun fjarvíddarteikningarinnar og tímabil endurreisnar í listasögunni.ÁfangamarkmiðNemandi- kynnist helstu efnum sem notuð eru við olíumálun- nýti sér teiknikunnáttu sína, þekkingu á fjarvíddarreglum - nái valdi á blöndun lita- geti nýtt sér litasamsetningar á markvissann hátt - geti komið þrívíðu viðfangsefni fyrir á tvívíðum fleti á sannfærandi hátt- átti sig á tilkomu fjarvíddartækninnar á tíma endurreisnarNámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






