Málun 2

Númer: 
22
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Málun
Kennari: 
Sigtryggur B. Baldvinsson
Stutt lýsing á námskeiði: 

Ætlað nemendum með undirstöðu í málun og teikningu. Gerðar verða fjölbreittar æfingar sem stuðla að betri skylningi á eðli og áhrifum lita. Sérstök áhersla verður lögð á litafjarvídd og dýpt í málverki. Verkefnin verða studd með og tengd við dæmi úr listasögunni. Í seinni hluta námskeiðsins verða mismunandi aðferðir við að stækka upp myndir prófaðar. Farið verður í ljósmyndaferð og unnið verður upp úr ljósmyndunum sem teknar verða. Sérstök áhersla verður á skynjun, greiningu og blöndun lita náttúrunnar. Vorönn: Megináhersla á vinnu útfrá ljósmynd. Skoðaðar verða ýmsar leiðir til að stækka upp og nýta sér ljósmyndina í málverk. Farið verður í ljósmyndaferð og unnið upp úr afrakstri hennar. Áhersla lögð á þjálfun í litgreiningu og litablöndun. Námslok miðast við 80% mætingu. Páskafrí 2.-9.april 2012. Sumardagurinn fyrsti 22.apríl.

Hámarksfjöldi nemenda: 
12
Verð: 
Kr. 59,900
Upphafsdagur vorannar: 
fimmtudagur, 19 janúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
fimmtudagur, 3 maí, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
fimmtud.
Kennslutími: 
17.30-20.15
Efniskaup: 
Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Fjöldi kennsluvikna: 
14 vikur
Kennslustundir: 
52
Einingar: 
2
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Undanfari: TG1 -Teikning 1, TG2 -Teikning 2 og MG1 - Málun 1. (eða annað sambærilegt. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.) Áfangalýsing Námskeiðið miðast við að nemandi hafi lokið byrjenda áföngum í meðferð olíulita. Byggt er á verkefnum sem miða að frekari þjálfun í málun með olíulitum. Fjölbreytt viðfangsefni sem ætlað er að kynna fjölbreytta meðferð og not áhalda, pensil beitingu litablöndun og fl. Unnið er að skissugerð, fjallað um myndbyggingu, sjónarhorn, og frekari úrvinnslu verkefna. Áhersla er lögð á mikilvægi myndbyggingar. Í verkefnum tengjast nemendur listasögu 19 og/eða 20 aldar. Gert er ráð fyrir að nemendur sæki tvær annir samfellt. Áfangamarkmið Nemandi kunni að beita verkfærum á fjölbreyttan máta.