Málun 3

Númer: 
23
Nánari upplýsingar: 
- g. ekki í boði
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Málun
Kennari: 
Einar Garibaldi Eiríksson
Stutt lýsing á námskeiði: 

Málun 3 er framhaldsáfangi ætlaður nemendum sem hafa grunnám í teikningu og meðferð olíulita að baki. Námið byggir á fjölbreyttum verkefnum sem lögð eru fyrir nemendur. Þar reynir á persónulega túlkun í meðferð lita og myndefnis, rökrænt þróunarferli hugmynda með tilraunum þar sem lögð er áhersla á þjálfun og skilning á miðlinum. Verk listamanna á 20 öld eru skoðuð og greind í samhengi við verkefni nemenda sem þannig eru tengd listasögunni. Námslok miðast við 80% mætingu. Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012. Páskafrí 2.-9.april 2012.

Hámarksfjöldi nemenda: 
12
Kennslutími: 
17:30-20:15
Efniskaup: 
Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Fjöldi kennsluvikna: 
28 vikur
Kennslustundir: 
104
Einingar: 
4
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: MG3 - Málun 3 - Undanfari: TG1-Teikning 1, TG2-Teikning 2, MG1-Málun 1 og MG2-Málun 2 (eða annað sambærilegt). Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Áfangalýsing Málun 3 er framhaldsáfangi ætlaður nemendum sem hafa grunnám í teikningu og meðferð olíulita að baki. Námið byggir á fjölbreyttum verkefnum sem lögð eru fyrir nemendur. Þar reynir á persónulega túlkun í meðferð lita og myndefnis, rökrænt þróunarferli hugmynda með tilraunum þar sem lögð er áhersla á þjálfun og skilning á miðlinum. Verk listamanna á 20 öld eru skoðuð og greind í samhengi við verkefni nemenda sem þannig eru tengd listasögunni. Áfangamarkmið Nemandi geti yfirfært þekkingu sína úr fyrri áföngum og nýtt á persónulegan hátt - hafi þroskað myndræna skynjun sína með aukinni reynslu og markvissum vinnubrögðum - geti unnið eftir ákveðnu ferli þar sem eitt vinnslustig tekur við af öðru, frá frumskissu til lokaniðurstöðu - geti sett verkefni sitt í listsögulegt samhengi, hafi tekið þátt í umræðum og fjallað um eigin verk og annarra. Námsmat Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.