Málun 3 morguntímar
Málun 3 er framhaldsáfangi ætlaður nemendum sem hafa grunnám í teikningu og meðferð olíulita að baki. Námið byggir á fjölbreyttum verkefnum sem lögð eru fyrir nemendur. Þar reynir á persónulega túlkun í meðferð lita og myndefnis, rökrænt þróunarferli hugmynda með tilraunum þar sem lögð er áhersla á þjálfun og skilning á miðlinum. Verk listamanna á 20.öld eru skoðuð og greind í samhengi við verkefni nemenda sem þannig eru tengd listasögunni.Námslok miðast við 80% mætingu.
- Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012.
- Páskafrí 2.-9.april 2012.
Námsskrá: Málun 3. MG3.4 Undanfari: TG1-Teikning 1, TG2-Teikning 2, MG1-Málun 1 og MG2-Málun 2 (eða annað sambærilegt). Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. ÁfangalýsingMálun 3 er framhaldsáfangi ætlaður nemendum sem hafa grunnám í teikningu og meðferð olíulita að baki. Námið byggir á fjölbreyttum verkefnum sem lögð eru fyrir nemendur. Þar reynir á persónulega túlkun í meðferð lita og myndefnis, rökrænt þróunarferli hugmynda með tilraunum þar sem lögð er áhersla á þjálfun og skilning á miðlinum. Verk listamanna á 20 öld eru skoðuð og greind í samhengi við verkefni nemenda sem þannig eru tengd listasögunni.ÁfangamarkmiðNemandi geti yfirfært þekkingu sína úr fyrri áföngum og nýtt á persónulegan hátt- hafi þroskað myndræna skynjun sína með aukinni reynslu og markvissum vinnubrögðum- geti unnið eftir ákveðnu ferli þar sem eitt vinnslustig tekur við af öðru, frá frumskissu til lokaniðurstöðu- geti sett verkefni sitt í listsögulegt samhengi, hafi tekið þátt í umræðum og fjallað um eigin verk og annarra.NámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






