Málun 4 Módel- og Portrettmálun.
Höfuð, herðar, hné og tær. Á námskeiðinu verður unnið út frá lifandi fyrirmynd að hluta. Áhersla verður jafnt á módelið og staðsetningu þess í rými. Skoðaðar verða ólíkar vinnuaðferðir, allt frá skissu / olíu-skissu til fullkláraðs verks sem krefst mikillar yfirlegu. Farið verður yfir mismunandi litasamsetningar til að skapa sannfærandi skinntóna. Teknir verða fyrir, hlutar mannslíkamans og þeim gerð sérstök skil. Lögð verður áhersla á að fullgera myndverk með tilliti til birtu, lita og heildarmyndbyggingar. Undanfari: Að nemendur hafi reynslu af módelteiknun og málun. Unnið verður með olíuliti auk annarra efna sem við á hverju sinni. Námslok miðast við 80% mætingu.
- Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012.
- Páskafrí 2.-9.april 2012.
Námskrá Málun 4 - MG4.4 - Undanfari: TG1.3-Teikning 1, TG2.3-Teikning 2, MG1.4-Málun 1, MG2.4-Málun 2 og MG3.4 Málun 3 eða annað sambærilegt. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.ÁfangalýsingÁfanginn er ætlaður nemendum sem hafa góða þjálfun í málun. Í gegnum fjölbreytt verkefni er leitast við að nemandi nái að vinna á sjálfstæðan hátt og geti þróað með sér hugmynd að verkefni og unnið þá hugmynd áfram í fullunna mynd. Áhersla lögð á að nemandi dýpki skilning sinn á miðlinum og nái að nýta sér þá færni sem hann hefur tileinkað sér á markvissann hátt.Lögð eru fyrir ólík verkefni, hugmyndalega og tæknilega, þar sem nemandi getur mátað sig við mismunandi aðferðir og með því aukið listrænan skilning sinn. Nemendur kynni sér ákveðinn listamann og tengi verki sínu.Áfangamarkmið Nemandi reyni mismunandi leiðir til að túlka myndefni sitt- sýni persónulega afstöðu í vali myndefnis og úrvinnslu- geti yfirfært og þróað áfram niðurstöður sínar úr hugmynda og skissuvinnu í málverk- geti rætt og rökstutt þróun verk síns og tekið þátt í umræðum um verk sín og annarra- hafi kynnt sér og gert grein fyrir verkum valins listamannsNámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni .






