Málun 4 / Mynd af mynd - frjáls úrvinnsla
Á námskeiðinu verður unnið með hefðbundnar jafnt sem leitandi aðferðir í málverki. Nemendur vinna sjálfstætt að eigin verkefnum í samráði við kennara. Kynntar verða aðferðir við að greina, móta og þróa sjálfstæða og persónulega myndhugsun nemenda. Skoðaðar verða fjölbreyttar málaraaðferðir og farið yfir ólíka tjáningarmöguleika, framsetningu og tækni í samtímamálverki. Á tímabilinu verða ýmis verkefni lögð fyrir nemendur, er miða að því að opna fyrir umræðuna, auka þekkingu og skilning á viðfangsefninu. Reglulega verður farið í heimsóknir á söfn, sýningar og vinnustofur listamanna, auk óformlegra kynninga og samræðna um listsöguleg málefni. Áfangalýsing:Áfanginn er ætlaður þeim sem búa yfir góðri kunnáttu og þjálfun í undirstöðuatriðum í málverki. Kennslan er einstaklingsbundin og miðuð nemendum sem tilbúnir eru til að takast á við fjölbreytt og ögrandi verkefni. Námskeiðið hentar öllum sem bæta vilja við faglega þekkingu sína og færni í málaralist.Áfangamarkmið:Að nemendur - öðlist færni í að greina og móta sjálfstæða myndhugsun sína.- þrói sína eigin tækni og aðferðir út frá persónulegum hugmyndaheimi.- geti sett verkefni sín í samhengi við samtímahugmyndir í málaralist.Námslok miðast við 80% mætingu.Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012. Páskafrí 2.-9.april 2012.
Námskrá: Málun 4. MG4 - Undanfari: TG1.3, TG2.3, MG1.4, MG2.4 og MG3.4 eða annað sambærilegt. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.ÁfangalýsingÁfanginn er ætlaður nemendum sem hafa góða þjálfun í málun. Í gegnum fjölbreytt verkefni er leitast við að nemandi nái að vinna á sjálfstæðan hátt og geti þróað með sér hugmynd að verkefni og unnið þá hugmynd áfram í fullunna mynd. Áhersla lögð á að nemandi dýpki skilning sinn á miðlinum og nái að nýta sér þá færni sem hann hefur tileinkað sér á markvissann hátt.Lögð eru fyrir ólík verkefni, hugmyndalega og tæknilega, þar sem nemandi getur mátað sig við mismunandi aðferðir og með því aukið listrænan skilning sinn. Nemendur kynni sér ákveðinn listamann og tengi verki sínu.Áfangamarkmið Nemandi - reyni mismunandi leiðir til að túlka myndefni sitt- sýni persónulega afstöðu í vali myndefnis og úrvinnslu- geti yfirfært og þróað áfram niðurstöður sínar úr hugmynda og skissuvinnu í málverk- geti rætt og rökstutt þróun verk síns og tekið þátt í umræðum um verk sín og annarra- hafi kynnt sér og gert grein fyrir verkum valins listamannsNámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






