Módelteikning
Grundvallaratriði módelteikningar. Stefnt að því að nemendur tileinki sér aðferðir til að mæla hlutföll mannslíkamans jafnframt því að þeir átti sig á samræmi hlutfalla og forma. Ýmist teiknaðar styttri stöður módels þar sem áherslan er á heildarsýn eða lengri stöður sem útheimta vandaðri mælingar og meiri námkvæmni. Innsýn gefin í anatómíu fyrir teiknara. Unnið verður eftir gifsstyttum og uppstillingum í hluta námskeiðsins einkum í upphafi.Námslok miðast við 80% mætingu.
Námsskrá: Módelteikning 1 A. TM1. Undanfari: TG1-Teikning 1 (eða annað sambærilegt). Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.Áfangalýsing.Kennd eru grundvallaratriði módelteikningar. Teiknað eftir lifandi fyrirmynd. Í upphafi er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér aðferðir til mælingar á hlutföllum mannslíkamans, læri að nota lóðlínur og hjálparlínur til að meta stefnur og hlutföll. Lögð er áhersla á þrívíðan formskilning, jafnframt því að átta sig á ( hlutföllum og) styttingu forma í mismunandi líkamstöðu módels frá ólíkum sjónarhornum. Ýmist eru teiknaðar stöður módels þar sem lögð er áhersla á að ná réttri heildarmynd eða lengri stöður þar sem nemandi glímir við formun módels með skyggingu. Samfara verkefnum læra nemendur grunnatriði anatómíu fyrir teiknara og nýta sér þá kunnáttu við teikningu módelsins. ÁfangamarkmiðNemandi- hafi tileinkað sér aðferð hlutfallamælingar við teiknun.- geti með hjálparlínum metið stefnu og stöðu módels í rými.- geti teiknað mismunandi líkamstöðu í réttum hlutföllum.- geti með skyggingu formað módel og komið þrívídd þess til skila.- geti nýtt sér anatómíu til að teikna hluta módel á sannfærandi hátt.- geri sér grein fyrir mikilvægi línunnar við teikningu módels.NámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






