Módelteikning framhald
Í áfanganum er lögð áhersla á anatómíu fyrir teiknara.Nemendur vinna að verkefnum sem auka kunnáttu og þjálfun í að sjá þá anatómísku þætti mannslíkamans sem mestu skipta við teikningu og mótun mannslíkamans. Nemendur læra um helstu beina- og vöðvabyggingu mannslíkamans, sem móta ytra form hans og hafa áhrif á breytileika forma við hreyfingu hans. Einnig er fengist við: Hraðvinnu, þar sem hreyfing formsins og línunnar er helsta viðfangsefnið. Langar stöður módels "stúdíur" . Staðsetning módels í umhverfi. Tekin eru dæmi úr listasögu og samtímalist um mannslíkamann sem viðfangsefni myndlistar. Unnið er með margvíslegum teikniáhöldum. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið a.m.k. einum áfanga í módelteikningu. Námslok miðast við 80% mætingu.
- Páskafrí 2.-9.april 2012.
Námsskrá: Módelteikning og módelmótun. TM2.2 . Undanfari: TM1.2 eða TM1.3. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.Mótunarhlutinn er ekki kenndur á 2 ein.námskeiðum. ÁfangalýsingGert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið a.m.k. einum áfanga í módelteikningu. Námskeiðið skiptist í módelteikningu, Í áfanganum er miðað að því að nemandi nái tökum á að teikna mannslíkamann í löngum stöðum og með hraðskissum.Í teikningu er unnið með línu og form á tvívíðum fleti. Aukin áhersla er lögð á anatómíu fyrir teiknara og hún lögð til grundvallar í útfærslu verkefna. Rýmisskynjun (þrívíddarskynjun) nemandans er þjálfuð með mismunandi stellingum (stöðum) og staðsetningu módels í rými. Lögð er áhersla á túlkandi línu í formskoðuninni.ÁfangamarkmiðNemandi- geti teiknað mismunandi stöður módels með hraðskissum- geti í lengri stöðum teiknað og mótað módel með skyggingu.- hafi góða þekkingu á anamómíu mannslíkamans.- geti nýtt sér blæbrigði línunnar til túlkunnar í teikningu sinni.- geti greint og mótað þrívíð form mannslíkamans.NámsmatSkal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






