Módelteikning morguntímar

Númer: 
19
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Teikning
Kennari: 
Katrín Briem
Stutt lýsing á námskeiði: 

Grundvallaratriði módelteikningar. Stefnt að því að nemendur tileinki sér aðferðir til að mæla hlutföll mannslíkamans jafnframt því að þeir átti sig á samræmi hlutfalla og forma. Ýmist teiknaðar styttri stöður módels þar sem áherslan er á heildarsýn eða lengri stöður sem útheimta vandaðri mælingar og meiri námkvæmni. Innsýn gefin í anatómíu fyrir teiknara. Unnið verður eftir gifsstyttum og uppstillingum í hluta námskeiðsins einkum í upphafi. Námslok miðast við 80% mætingu.

  • Páskafrí 2.-9.april 2012
Hámarksfjöldi nemenda: 
12
Verð: 
Kr. 68,500
Upphafsdagur vorannar: 
mánudagur, 16 janúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
mánudagur, 30 apríl, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
mánud.
Kennslutími: 
09.00-11.45
Efniskaup: 
Blýantar (2H, HB, 2B, 4B, 6B), yddari, strokleður og hnoðleður.
Fjöldi kennsluvikna: 
14 vikur
Kennslustundir: 
52
Einingar: 
2
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Módelteikning og módelmótun. TM2.2 . Undanfari: TM1.2 eða TM1. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.3 Mótunarhlutinn er ekki kenndur á 2 ein.námskeiðum. Áfangalýsing Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið a.m.k. einum áfanga í módelteikningu. Námskeiðið skiptist í módelteikningu, Í áfanganum er miðað að því að nemandi nái tökum á að teikna mannslíkamann í löngum stöðum og með hraðskissum. Í teikningu er unnið með línu og form á tvívíðum fleti. Aukin áhersla er lögð á anatómíu fyrir teiknara og hún lögð til grundvallar í útfærslu verkefna. Rýmisskynjun (þrívíddarskynjun) nemandans er þjálfuð með mismunandi stellingum (stöðum) og staðsetningu módels í rými. Lögð er áhersla á túlkandi línu í formskoðuninni. Áfangamarkmið Nemandi - geti teiknað mismunandi stöður módels með hraðskissum - geti í lengri stöðum teiknað og mótað módel með skyggingu. - hafi góða þekkingu á anamómíu mannslíkamans. - geti nýtt sér blæbrigði línunnar til túlkunnar í teikningu sinni. - geti greint og mótað þrívíð form mannslíkamans. Námsmat Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.