Námskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 13-16 ára
Eitt af markmiðum Myndlistaskólans er að veita nemendum á grunnskólastigi möguleika á að tileinka sér þekkingu og reynslu á sviði sjónmennta, sem styður við og dýpkar þá almennu þekkingu sem grunnskólinn veitir með listgreinakennslu sinni. Verkefnin eru fjölbreytt og miðast við þroska nemenda hverju sinni.Unnið er með grundvallaratriði sjónlista í tvívídd og þrívídd; form, rými,lit, ljós og skugga.
Aðstaða innan fagskóla er oftast önnur en mögulegt er að veita innan hins almenna skólakerfis. Felst það fyrst og fremst í lengri viðveru nemenda, möguleika á umfangsmeiri verkefnum og aðstöðu á verkstæðum, auk örvandi áhrifa þess að upplifa jafnt og þétt verk í vinnslu og fullbúin verk eftir nemendur á öllum aldri. Nemendur hafa einnig aðgang að bókasafni skólans sem er vel útbúið fagbókasafn.
- Allt efni innifalið.
- 12 börn í hópnum.
- Frístundakort Reykjavíkurborgar.
Námskeið
| Staða | Heiti námskeiðs | Númer | Kennslutími | Kennsludagur | Upphafsdagur vorannar | Lokadagur vorannar | Kennari | Upphafsdagur haustannar | Lokadagur haustannar | Flokkur |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| - f. skráningu lokið | 13 - 16 ára Myndlist - Grafarvogi | 155 | 13 - 16 ára | |||||||
| - skráningu lokið | 13 - 16 ára Tölvuleikir og Vídeólist | 152 | 18.00-20.55 | þriðjud. | þriðjudagur, 17 janúar, 2012 | þriðjudagur, 24 apríl, 2012 | 13 - 16 ára | |||
| - f. skráningu lokið | 13 - 16 ára Teikning-Málun-Grafík | 154 | 18.00-20.55 | fimmtud. | fimmtudagur, 19 janúar, 2012 | fimmtudagur, 26 apríl, 2012 | 13 - 16 ára | |||
| - skráningu lokið | 13-16 ára Leirmótun, rennsla og steypa | 156 | 16.00-18.55 | föstud. | föstudagur, 20 janúar, 2012 | föstudagur, 27 apríl, 2012 | 13 - 16 ára | |||
| - f. skráningu lokið | 13-16 ára Myndasögur | 158 | 10:00-12.55 | laugard. | laugardagur, 21 janúar, 2012 | laugardagur, 28 apríl, 2012 | 13 - 16 ára |








