Námstími og skólasókn

Kennsluár

Kennslutími fornáms skiptist í tvær annir, 16 vikur á haustönn og 14 vikur á vorönn. Kennsla á haustönn hefst í kringum 20. ágúst og lýkur í síðasta lagi upp úr miðjum desember; vorönn hefst strax eftir áramót og stendur út apríl. Engin kennsla fer fram á helgidögum þjóðkirkjunnar eða á öðrum lögboðnum frídögum. Stjórn getur ákveðið að fella niður kennslu á öðrum dögum en hér eru nefndir.

Skipulag áfanga í tímabil

Myndlistar- og hönnunarsvið við Myndlistaskólann er 39 eininga og er skipulagt sem bundið ársáfangakerfi. Nemendur fylgjast að í einni bekkjardeild. Áfangar eru skipulagðir með hliðsjón af aðalnámsskrá framhaldsskóla, einnig með tilliti til reynslu kennara Myndlistaskólans. Námið er sambærilegt námi við listnámsbrautir innan framhaldsskóla, sem er undirbúningsnám fyrir æðri stig í sjónmenntun. Gert er ráð fyrir að nemandi ljúki námi Myndlista- og hönnunarsviði á einu ári. Hvor önn skiptist í áfanga, sem hafa mismikið vægi. Áfangalýsing fylgir hverjum áfanga og er tilgreind í kennsluskrá. Í upphafi hvers áfanga fá nemendur einnig kennsluáætlun, þar sem lýst er markmiðum og námsmati og veittar upplýsingar um efnisnotkun við nám. Ef um efnisútvegun er að ræða veita skólaskírteini afslátt í helstu verslunum, sem bjóða myndlistarvörur. Námsmat fer fram í lok hvers áfanga eða síðar eftir nánara skipulagi þar um.

Skólasókn

Nemendur eiga að mæta í alla kennslu og koma stundvíslega hvern dag. Kennarar hafa yfirlit yfir ástundun og skrá viðveru nemenda. Forföll vegna veikinda skulu vera tilkynnt samdægurs og síðan staðfest með læknisvottorði. Ef um langvarandi fjarvistir er að ræða af völdum veikinda eða af öðrum toga, er af hálfu skólans reynt að leysa þann vanda eftir því sem við á hverju sinni. Nemendur fá einkunn fyrir skólasókn. Skólasókn er ekki metin til eininga. Nemandi, sem ekki getur skilað læknisvottorði eða hefur ekki fengið sérstakt leyfi kennara/deildarstjóra frá námi úr áfanga, og nær ekki 80% mætingu fyrirgerir rétti sínum til að halda áfram námi í viðkomandi áfanga og verkefni hans munu ekki vera tekin til námsmats.