Teikning 1

Númer: 
5
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Teikning
Kennari: 
Þóra Sigurðardóttir
Stutt lýsing á námskeiði: 

Undirstöðuatriði hlutateikningar með áherslu á gagnsæishugsun og formgreiningu. Unnið með frumform og hlutir teiknaðir í samsíða vídd (ísometríu). Könnuð undirstöðuatriði fjarvíddar, rúmtak hluta rannsakað með teikningu og form mótuð með skyggingu. Samspil línu, ljóss og skugga skoðað. Verkfærið er blýantur. Námslok miðast við 80% mætingu.

Hámarksfjöldi nemenda: 
12
Verð: 
Kr. 73,300
Upphafsdagur vorannar: 
mánudagur, 16 janúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
mánudagur, 30 apríl, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
mánudaga
Kennslutími: 
17:30-21:30
Efniskaup: 
Blýantar (2H, HB, 2B, 4B, 6B), yddari, strokleður og hnoðleður.
Fjöldi kennsluvikna: 
14 vikur
Kennslustundir: 
78
Einingar: 
3
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Teikning 1. TG1.3. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Áfangalýsing. Í áfanganum eru kennd undirstöðuatriði teikningar með áherslu á gagnsæi í formgreiningu. Í upphafi er unnið með samsíða vídd, þar sem nemandi teiknar ferninginn gagnsæann. Með teikningu raðar nemandi misstórum ferningum á blaðflötinn og tekst þannig á við rúmtak hluta og staðsetningu þeirra í rými. Frumform og einfaldir hlutir eru mótaðir með skyggingu, samspili línu ljóss og skugga. Blæbrigði línunnar eru þjálfuð m.a. með teikningu náttúruforma. Saga fjarvíddarinnar skoðuð í gegnum listasöguna. Kennd eru undirstöðuatriði fjarvíddar með einföldum æfingum, síðan er rými innanhúss og utan teiknað út frá einum og/eða tveimur hvarfpunktum. Hlutfallamæling æfð með teikningu einfaldra hluta. Verkfærið er blýantur. Teikning 1 er grunnámskeið fyrir byrjendur. Áfangamarkmið. Nemandi -geri sér grein fyrir uppbyggingu og samsetningu forma. -geti teiknað samsíða form og staðsett í rými -nái valdi á grátóna skyggingu -geti mótað form með skyggingu -geti nýtt sér blæbrigði blýantsins í línu og skyggingu -skilji forsendur fjarvíddar og geti nýtt sér þær í teikningu. -teiknað einfalda fyrirmynd í réttum stærðarhlutföllum -sé fær um að meta eigin verkefni og annarra Námsmat. Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum um verkefnin.