Teikning 1 morguntímar
Undirstöðuatriði hlutateikningar með áherslu á gagnsæishugsun og formgreiningu. Unnið með frumform og hlutir teiknaðir í samsíða vídd (ísometríu). Könnuð undirstöðuatriði fjarvíddar, rúmtak hluta rannsakað með teikningu og form mótuð með skyggingu. Samspil línu, ljóss og skugga skoðað. Verkfærið er blýantur.Námslok miðast við 80% mætingu.
- Páskafrí 2.- 9.april 2012.
Námsskrá: Teikning 1. TG1.3. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Áfangalýsing.Í áfanganum eru kennd undirstöðuatriði teikningar með áherslu á gagnsæi í formgreiningu. Í upphafi er unnið með samsíða vídd, þar sem nemandi teiknar ferninginn gagnsæann. Með teikningu raðar nemandi misstórum ferningum á blaðflötinn og tekst þannig á við rúmtak hluta og staðsetningu þeirra í rými.Frumform og einfaldir hlutir eru mótaðir með skyggingu, samspili línu ljóss og skugga. Blæbrigði línunnar eru þjálfuð m.a. með teikningu náttúruforma.Saga fjarvíddarinnar skoðuð í gegnum listasöguna.Kennd eru undirstöðuatriði fjarvíddar með einföldum æfingum, síðan er rými innanhúss og utan teiknað út frá einum og/eða tveimur hvarfpunktum. Hlutfallamæling æfð með teikningu einfaldra hluta.Verkfærið er blýantur. Teikning 1 er grunnámskeið fyrir byrjendur.Áfangamarkmið.Nemandi-geri sér grein fyrir uppbyggingu og samsetningu forma.-geti teiknað samsíða form og staðsett í rými-nái valdi á grátóna skyggingu-geti mótað form með skyggingu-geti nýtt sér blæbrigði blýantsins í línu og skyggingu-skilji forsendur fjarvíddar og geti nýtt sér þær í teikningu.-teiknað einfalda fyrirmynd í réttum stærðarhlutföllum-sé fær um að meta eigin verkefni og annarra Námsmat.Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum um verkefnin.






