Teikning 2

Númer: 
6
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Teikning
Kennari: 
Sólveig Aðalsteinsdóttir
Stutt lýsing á námskeiði: 

Teikning fjölbreyttra manngerðra hluta, náttúruforma og umhverfis í fjarvídd. Áhersla lögð á fríhendisteikningu. Mælingar og hlutföll, stefnur og staðsetning hluta í rými. Unnið með gagnsæishugsun og formgreiningu, mótun og efnisáferð með blæbrigðaríkri skyggingu. Farið er í vettvangsferðir og teiknuð mismunandi rými og kringumstæður. Mannslíkaminn er teiknaður, beinagrindin könnuð og teiknað eftir lifandi módeli. Nemendur kynnast teikningu og prentun með grafískri aðferð. Námslok miðast við 80% mætingu.

Hámarksfjöldi nemenda: 
12
Verð: 
Kr. 73,300
Upphafsdagur vorannar: 
þriðjudagur, 17 janúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
þriðjudagur, 24 apríl, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
þriðjud.
Kennslutími: 
17:30-21:30
Efniskaup: 
Blýantar (2H, HB, 2B, 4B, 6B), yddari, strokleður og hnoðleður.
Fjöldi kennsluvikna: 
14 vikur
Kennslustundir: 
78
Einingar: 
3
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Teikning 2 - TG2.3 .Undanfari TG1.3. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar. Áfangalýsing Í þessum áfanga er gert ráð fyrir því að nemendur hafi tileinkað sér grunnatriði teikningar og þá þjálfun sem þarf í meðferð verkfæranna. Lögð er áhersla á fríhendisteikningu og unnið að því að nemandi læri að greina stærðarhlutföll, nái valdi á mælingu og geti yfirfært hana yfir á blaðið. Geri sér grein fyrir stefnum línunnar, staðsetningu hluta í rými og innbyrðis afstöðu, sé um uppstillingu fleiri hluta að ræða. Athygli er vakin á mikilvægi línunnar í teikningu, nemandi nái að nota línuna til túlkunar á fjarvídd, efni og áferð. Lögð er áhersla á að nemandi þjálfi sjónskyn sitt og næmni fyrir grátónum og æfist í að móta teiknaðan hlut með næmri skyggingu. Teiknaðir eru fjölbreyttar fyrirmyndir hluta og náttúruforma, þar sem form yfirborð, áferð og litbrigði krefjast nákvæmrar skoðunar og ólíkrar nálgunar Lögð áhersla á að nemandi nái að greina styrk sinn í teikningunni, þrói með sér persónuleg og sjálfstæð vinnubrögð. Áfangamarkmið Nemandi - geti formgreint mismunandi form - geti teiknað fyrirmynd með hjálp hlutfallamælingar - geti teiknað hlut og staðsett á réttan máta í rými - geti nýtt sér línuna á blæbrigðarríkan hátt til túlkunar - geti með skyggingu dregið fram þrívídd hluta - sé fær um að meta verkefni sín og annarra - geti tekið þátt í umræðu um verkefni og rökstutt skoðanir sínar. Námsmat Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.

Páskafrí 2.-9.april 2012.