Umsókn

Umsóknarfrestur í Mótun er 4.júní 2012.    

  • MÓTUN A - nám haustönn 2012.
  • MÓTUN B - nám á vorönn 2013. Nýir nemendur verða teknir inn ef pláss losna. Áhugasamir hafi samband við keramik@myndlistaskolinn.is.
  • MÓTUN C - nám haustönn 2012.
  • MÓTUN D - nám á vorönn 2013. Nýir nemendur verða teknir inn ef pláss losna. Áhugasamir hafi samband við keramik@myndlistaskolinn.is.

Umsókn í Mótun skólaárið 2012 - 2013

Diplómanám - tveggja ára nám á háskólastigi. Samstarf Myndlistaskólans og Tækniskólans.

Til þess að umsókn verði tekin gild þarf umsækjandi að hafa lokið listnámsbraut framhaldsskóla eða sambærilegu námi eða hafa starfsreynslu.

UMSÓKNARFRESTUR er til kl.17.00 mánudaginn 4.júní.

Umsókn skal fylgja mappa (stærð hámark A3) með sýnishornum af verkum:

  • 10 - 20 myndir af verkum umsækjanda s.s. ljósmyndir, tölvuprent eða annarskonar heimilidir. Með þeim skal fylgja greinargóð lýsing þar sem fram koma upplýsingar um stærð, ártal, efni og aðferð. Einnig skal veita upplýsingar um, undir hvaða kringumtæðum verkið var gert s.s. í skóla, sjálfstæð vinna í skóla eða utan skóla.
  • Einnig skal senda inn skissubók eða skissuteikningar sem endurspegla persónulega sköpun og hugmyndavinnu umsækjanda ef viðkomandi á þetta til.
  • Umsókninni þurfa að fylgja staðfest vottorð um fyrra nám (staðfest afrit).

Útprentað eintak af umsókn þarf að fylgja ofangreindum gögnum.
Umsókn ásamt gögnum skal skilað eða sent í pósti merkt:

Umsókn Mótun, Myndlistaskólinn í Reykjavík, Hringbraut 121, 107 Reykjavík. Móttaka umsókna er á skrifstofu 2.hæð sem er opin virka daga kl.13-17 og föstudaga kl.13-16

Farið verður með umsókn og fylgigögn sem trúnaðarmál. Skólinn sendir í pósti svarbréf vegna umsókna fyrir 22.6.2012. Nemendur sem teknir verða inn í skólann þurfa að staðfesta skólavist í síðasta lagi 28.júní með greiðslu 1/3 af skólagjaldi komandi haustannar. .