Vatnslitun framhald

Númer: 
37
Nánari upplýsingar: 
- skráningu lokið
Skráning á námskeið: 
Deild: 
FRAMHALDSSKÓLASTIG ALMENN NÁMSKEIÐ
Flokkur: 
Málun
Kennari: 
Hlíf Ásgrímsdóttir
Stutt lýsing á námskeiði: 

Framhaldsnámskeið byggt á sérstökum eiginleikum vatnslitarins þar sem tærleiki litanna, blöndun þeirra og flæði eru í fyrirrúmi. Unnið með uppbyggingu litarins í mörgum lögum og samspil pappírs áferðar og litar. Nemendum er kynnt notkun vatnslitarins í listsögulegu samhengi. Myndefni er sótt í umhverfið, bæði utan húss og innan. Lögð er áhersla á að nemandinn tileinki sér góð vinnubrögð bæði í úrvinnslu og ekki síður í undirbúningi myndverksins svo sem með skissuvinnu, íhugun og teikningu. Nauðsynlegt að nemendur hafi sótt námskeið í teikningu og vatnslitun og búi yfir reynslu af litameðferð. Námslok miðast við 80% mætingu.

  • Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012.
  • Páskafrí 2.-9.april 2012.
Hámarksfjöldi nemenda: 
12
Verð: 
Kr. 64,500
Upphafsdagur vorannar: 
þriðjudagur, 17 janúar, 2012
Lokadagur vorannar: 
þriðjudagur, 24 apríl, 2012
Kennsludagur / kennsludagar: 
þriðjud.
Kennslutími: 
17.30-20.15
Efniskaup: 
Innifalinn er vatnslitapappír en nemandi kemur með liti. Best er að nota vatnslitakubba í litlum öskjum. Litir: Yellow Lemon, New Gamboge, Indian Yellow, Alizarin Crimson, Permanent Rose,French Ultramarine, Phalo Blue, Cobalt Blue (deep), Hooker´s Green, Burnt Sienna, Raw Sienna. Penslar: Svart íkornahár nr. 12-14 og 6-8. Tveir penslar nauðsynlegir og blýantar, yddari og strokleður.
Fjöldi kennsluvikna: 
14 vikur
Kennslustundir: 
52
Einingar: 
2
Kennslustaður: 
Hringbraut 121
Námskrárlýsing.: 

Námsskrá: Vatnslitur og teikning, framhald. MV2 . Undanfari: TG1-Teikning 1, TG2-Teikning 2, MV1-Vatnslitun 1 (eða annað sambærilegt. Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.) Áfangalýsing Áhersla er lögð á að nemendur kanni möguleika miðilsins með fjölbreyttum verkfærum sem byggja á sérstöðu vatnslitanna, tærleika þeirra og flæði. Unnið með mismunandi eiginleika pappírs og samspil pappírs og litar. Lagt er upp með verkefni sem byggja upp sjálfstæði nemandans í sköpun og vinnubrögðum. Unnið með uppbyggingu litarins í mörgum lögum og samspil pappírs áferðar og litar. Nemendum er kynnt notkun vatnslitarins í listsögulegu samhengi. Áfangamarkmið Nemandi - nái valdi á samspili teikningar og litar - geti formað fyrirmynd með lit í ljósi of skugga - nái valdi á tækni vatnslitamálunar - geti unnið með miðilinn á fjölbreyttan máta - geti byggt upp litatón og blæ og nýtt á persónulegan máta í verkefnum sínum - hafi kynnt sér og gert grein fyrir notkun vatnslitar í verkum ákveðins listamanns. Námsmat Skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.