Vatnslitun -Teikning morgunt.
Fyrir byrjendur og lengra komna. Byggt á sérstökum eiginleikum vatnslitarins þar sem tærleiki litanna, blöndun þeirra og flæði eru í fyrirrúmi.Möguleikar miðilsins kannaðir þ.e. hinir sérstöku eiginleikar vatnslitarins þar sem tærleiki litanna, blöndun þeirra og flæði eru í fyrirrúmi. Myndefni er sótt í umhverfið, bæði utan húss og innan. Lögð er áhersla á að nemandinn tileinki sér góð vinnubrögð bæði í úrvinnslu og ekki síður í undirbúningi myndverksins svo sem með skissuvinnu, íhugun og teikningu.Námslok miðast við 80% mætingu.
- Jólafrí 19.desember til 8.janúar 2012.
- Páskafrí 2.-9.april 2012.
Námskrá: Vatnslitun 1 og Teikning. MV1. Undanfari: TG1-Teikning 1, TG2-Teikning 2 (eða annað sambærilegt). Í kjölfar innleiðingar nýrra menntalaga stendur til að endurskoða áfangalýsingar.Áfangalýsing. Gert er ráð fyrir að nemandi hafi nokkuð vald á teikningu. Nemandi kynnist meðferð vatnslita og verkfæra. Námið byggist á æfingum þar sem tærleiki og gegnsæi vatnslitanna er í fyrirrúmi. Lagt uppúr flæði litaris Enn fremur þjálfun í mótun forma með ljósi og skugga. Áfangamarkmið eru að nemandi..... - kunni skil á pappírstegundum, mismunandi áferð og þykkt. - þekki hvernig pappírinn hefur áhrif á litinn. - geti unnið með flæði litarins, pensil skrift og áferð.Námsmat skal byggt á markmiðum áfangans og ástundun almennt, mætingu og þáttöku nemenda í umræðum á önninni.






