Vinnustofa Hvassaleiti
Myndlistaskólinn býður upp á opna vinnustofu fyrir fólk á öllum aldri þar sem nemendur fá aðstoð við að vinna að eigin verkum. Einkum er horft til ýmis konar málunar, til dæmis með olíu-, akrýl- eða vatnslitum. Þó er þáttakendum frjálst að vinna að hverskonar mynd- eða listsköpun, að svo miklu leyti sem aðstæður leyfa, og mun leiðbeinandi aðstoða eftir bestu getu. Aðgengileg verkefni verða lögð fyrir þá sem það vilja. Stefnt er á góða sýningu í lok vetrar og aðra minni á miðjum vetri. Af og til mun kennari kynna valda þætti úr listasögu með hjálp mynda og farið verður á listsýningar eftir því sem aðstæður og áhugi gefur tilefni til.






