Í upphafi skyldi endinn skoða - sýning nemenda í Mótun í Norræna Húsinu opnar 2.desember
„Í upphafi skyldi endinn skoða.“ Opnun sýningar föstudaginn 2. Desember í Norræna húsinu kl. 17:00. Samsýning 26 nemanda í Mótun, leir og tengd efni, í Norræna húsinu. Sýningin opnar 2. desember og stendur til 2. janúar 2012.
„Af moldu ertu kominn, að moldu skaltu aftur verða.“
Hluti nemenda hefur stundað rannsóknarvinnu með íslensk jarðefni en verk nemenda eru unnin úr margs konar leir. Á sýningunni má sjá verk tveggja hópa, annar hópurinn vinnur verk sem eru tengd minningum og eru unnin úr jarðleir. Hinn hópurinn vinnur verk sem tengd eru endalokum og eru í formi duftkerja. Því má segja að verk nemenda spanni allt frá upphafi efnis til enda.
Tveggja ára diplómanám, leið til BA-gráðu.
Nám í Mótun er tveggja ára tilraunastofa í samstarfi Myndlistaskólans í Reykjavík og Tækniskólans-skóla atvinnulífsins. Unnið er með leir og önnur efni, tengd honum. Námið er leið til BA-gráðu við evrópska samstarfsskóla.
Í náminu öðlast nemendur skilning á möguleikum leirsins og starfsumhverfi hans, læra framleiðsluaðferðir, kynnast nýjum efnum og aðferðum við vinnslu.
Frekari upplýsingar gefur Auður Eva í síma 6606162 eða á netfangið audureva13@gmail.com