Nýr vefur
Í stórum dráttum er það nám á námskeiðum eða fullt nám sem aðgreinir aðalflokka nýja vefsins: Diplómanám / Fullt nám - Framhaldsskólastig / Fullt nám - Börn og ungt fólk / námskeið - Framhaldsskólastig / almenn námskeið og svo er flokkur Um skólann. Skipulagning nýja vefsins er nú sniðin með skýrari hætti eftir uppbyggingu námsbrauta skólans.
Flýtileiðir hægra megin á síðunni eru: Námsskrá þar sem ætlunin er að hafa yfirlit yfir alla námsáfanga sem eru í boði við skólann en í bili eru aðeins komnir inn áfangar á námskeiðum sem kennd verða í haust og vetur, aðrir áfangar bætast svo við á næstunni. Dagatal sem sýnir helstu viðburði og Umsóknir sem er flýtileið inn á skráningarform á námskeið og síðar meir einnig leið til að nálgast umsóknareyðublöð í fullt nám.
Nemenda verk, mynd af spjaldi með höndum er leið að myndasafni, sem er þessa stundina varla komið í gang og verður unnið með það áfram.
Lögð var áhersla á að koma nýja vefnum út áður byrjað væri að taka á móti umsóknum á vetrarnámskeið og nýta þar með virkni á vefsíðunni sem á að létta vinnu við skráningu.
Við hjá skólanum vonum að þessi nýi vefur verði þægilegur og ánægjulegur í notkun og að notendur sýni þolinmæði meðan verið er að ljúka við að koma öllu því efni sem fyrirhugað er inn á síðurnar.




