Nýtt námskeið: Tilraunastofa í myndlist fyrir hreyfihamlaða.

Myndlistaskólinn í Reykjavík hefur að hvatningu Eddu Heiðrúnar Backman ákveðið að bjóða upp á námskeið fyrir þá sem eiga mjög erfitt með eða geta ekki notað hendur sínar til vinnu eða sköpunar. Kennt verður einu sinni í viku í 9 vikur, kl.14:30 - 17:00 á þriðjudögum og verða þrír til fimm nemendur í fyrsta hópnum. Námskeiðið hefst 19. október n.k. Skráning fer fram í gegnum vefsíðu Myndlistaskólans (myndlistaskolinn.is).