Skráning á vetrarnámskeið hefst á mánudaginn.
Hægt er að nálgast öll námskeiðin með því að ýta á NÁMSKRÁ hægra megin á þessari síðu eða fara inn á flokka, efst á síðunni, og fletta þaðan í NÁMSKEIÐALISTA hverrar deildar. Lýsingu á hverju námskeiði ásamt upplýsingum um kennara, dag og tíma, verð og fleira er hægt að skoða með því að velja af námskeiðalistum.
Bent er á að rétt númer námskeiðs er mikilvægt þegar skráningarform/umsókn er fyllt út svo öruggt sé að viðkomandi verði skráður á það námskeið sem hann/hún ætlar sér að taka. Til glöggvunar, er vinstra megin við skráningarformið, númeralisti með heiti námskeiðs og kennsludegi þar sem hægt er að fletta í þegar verið er að setja inn númerið og aðrar upplýsingar í skráningarformið.




