UM SKÓLANN
Markmið
Markmið skólans er að efla grunnmenntun á sviði sjónlista og að miðla sem best þekkingu í verklegum og fræðilegum þáttum til nemenda. Með kennslu barna, unglinga og framhaldsskólanemenda undirbýr skólinn nemendur sína fyrir störf jafnt á sviði myndlistar sem innan annarra greina sjónlista. Tilgangurinn með því að bjóða upp á símenntun á þessu sviði er tvíþættur. Annars vegar að gefa fólki sem starfar að sjónlistum kost á að halda menntun sinni og þjálfun við og hinsvegar að gera þá nemendur sína sem hafa annars konar grunnmenntun og starfa á öðrum vettvangi hæfari listnjótendur.
Myndlistaskólinn
Myndlistaskólinn í Reykjavík, Hringbraut 121, 107 Reykjavík, sími 551 1990, fax númer 551 1926. Netfang: mynd@myndlistaskolinn.is. Kennitala: 460269-4079.
OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU: mán-fim. kl.13-17 og fös.13-16.
Stjórn Myndlistaskólans
- Áslaug Thorlacius - aslaug@thorlacius.com.
- Brynhildur Pálsdóttir - brynhildur@vikprjonsdottir.com
- Hildur Bjarnadóttir
- Inga Þórey Jóhannsdóttir
- Ingibjörg Jóhannsdóttir - ingibjörg@myndlistaskolinn.is
- Kristinn G. Harðason - stjórnarformaður - kristgh@centrum.is
- Margrét H. Blöndal - magab@mmedia.is
Myndlistaskólinn í Reykjavík er sjálfseignarstofnun sem er rekinn af myndlistarmönnum. (Samþykktir/skipulagsskrá) og Lög Félags Myndlistaskólans í Reykjavík.
Skólinn er viðurkenndur af Mennta- og Menningarmálaráðuneyti sem einkaskóli á framhaldsskólastigi. Árið 2004 var undirritaður þjónustusamningur milli Myndlistaskólans og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur um fagkennslu í myndlist fyrir börn og unglinga á grunnskólastigi. Auk þess er í gildi þjónustusamningur milli skólans og ráðuneytisins um kennslu á framhaldsskólastigi. Skólinn var stofnaður árið 1947 og hefur starfað óslitið síðan. Skólinn er fagskóli á sviði sjónmennta, við hann kenna myndlistamenn og hönnuðir sem veljast til starfa á grundvelli menntunar og listræns ferils.
Svið skólans eru eftirfarandi:
- Fullt nám / undirbúningsdeildir fyrir nám á háskólastigi; Sjónlistadeild og Keramik kjörsvið. Kennt er í samræmi við námskrá framhaldsskóla.
- Barna-og unglingadeild þar sem boðið er upp á kennslu fyrir 6-9 ára, 10-12 ára og 13-16 ára auk þess sem boðið er upp á kennslu fyrir 4-5 ára börn.
- Almenn námskeið/símenntun er öllum opin. Um er að ræða áfanga á framhaldsskólastigi og símenntun fyrir eldri an 16 ára. Námið nýtist sem grunnur að áframhaldandi námi, til uppbyggingar tómstundastarfs og til að dýpka listskynjun og þekkingu á listum.
- Diplómanám - fullt nám í dagskóla. Teikning, Mótun og Textíll.
Starfið
Skólastarfinu er í megindráttum skipt í tvær 14 vikna annir, haustönn og vorönn og standa mörg af burðarnámskeiðum skólastarfsins yfir í heila önn. Jafnframt er boðið upp á ýmis styttri námskeið innan ramma námsannanna og sömuleiðis á vorin og fyrri hluta sumars, auk listasmiðja hér heima og erlendis fyrir börn og unglinga.
Bókasafn skólans er fagbókasafn vel búið gögnum þar sem nemendur geta unnið og aflað sér frekari þekkingar og heimilda. Safnið er opið á kennslutíma.
Sjónlistadeild er undirbúningsnám fyrir háskólastigið, undanfari þeirrar námsbrautar Fornám var stofnað í Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 2000. Um er að ræða eins og tveggja ára nám í dagskóla á framhaldsskólastigi til undirbúnings námi í hönnun, myndlist eða arkitektúr. Námið er skipulagt samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla sem út kom á vegum Menntamálaráðuneytis 1999.
Myndlistaskólinn á í samstarfi við grunnskóla í Reykjavík og við listaskóla í Evrópu. Varðar samstarfið bæði barna- og unglingadeild ásamt framhaldsskóla- og fullorðinsfræðslu. Má nefna Myndlistaskóla J.Stauskaite í Vilnius Litháen, unglingaskólann í Kungsbacka Svíþjóð, International Ceramic Studio in Kescemet Ungverjalandi, Listaháskólann í Tallin, Glasgow School of Art og Cumbria Institute of the Arts. Myndlistaskólinn hefur tvívegis hlotið styrki frá Leonardo da Vinci áætlun Evrópusambandsins til verkefna sem varða kennslu á verkstæðum fagskóla í listum. http://www.knowhow.is og http://www.knowhow2.is
Skólinn hefur auk þess unnið margs konar samvinnuverkefni í samstarfi við Reykjavíkurakademíuna, Hitt Húsið, Íþrótta-og tómstundaráð, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Listahátíð í Reykjavík, Ljósahátíð í Reykjavík og Listasafn Reykjavíkur svo fátt eitt sé nefnt.













