Myndlista- og hönnunarsvið

Myndlista- og hönnunarsvið / fornám er 2ja anna, 39 eininga nám í grunnatriðum sjónlista sem lokið er á einu ári í dagskóla.

Námið undirbýr nemendur fyrir frekara listnám í sérskólum eða á háskólastigi og veitir þeim trausta grunnmenntun fyrir fjölbreyttar greinar sjónlista. Þar má m.a. nefna myndlist (málun, skúlptúr, grafík, nýir miðlar), hönnun hvers konar (grafísk hönnun, umhverfishönnun, húsgagnahönnun, vöruhönnun, sviðshönnun), listhandverk, byggingalist, ljósmyndun, teiknimyndagerð, kvikmyndagerð, myndskreytingar og fleira.

Myndlistar- og hönnunarsvið (fornám) er einnig grunnur undir nám í hvers konar miðlun, listgreinakennslu, listmeðferðarfræði, listasögu og listheimspeki svo eitthvað sé nefnt.

Námið er góður valkostur og nýtist þeim nemendum sem:

  • hafa ekki aðgang að fjölbrauta- eða framhaldsskóla sem býður upp á nám á myndlistarbraut.
  • hafa lokið framhaldsskólanámi af annarri braut en myndlistarbraut og vilja bæta við sig námi til að standast kröfur sérskóla og háskóla um undirbúningsmenntun í sjónlistum.
  • vilja sækja um ákveðna skóla erlendis, sérskóla eða háskóla.