Keramik kjörsvið - FULLT NÁM
Kennt í samstarfi við Tækniskólann.
Keramikkjörsvið á Listnámsbraut Tækniskólans er 105 eininga nám. Hluti námsins, 21 eining, er kenndur á einni önn í samfelldu námi á keramikverkstæði Myndlistaskólans í Reykjavík. Í þeim hluta námsins einbeitir nemandinn sér að þrívíðri formskoðun, þar sem unnið er með form og rými á margvíslegan hátt og kenndar eru mótunaraðferðir og meðferð leirs. Áhersla er lögð á skapandi hugmyndavinnu og aðferðir til að koma eigin hugmyndun í framkvæmd. Með náminu er lagður grunnur að listháskólanámi á sviði þrívíðrar hönnunar, myndlistar eða frekara námi í keramiki.
Keramikkjörsvið á Listnámsbraut er skipulagt sem þriggja ára námsbraut en nemendur sem þess óska geta bætt við sig einingum í bóklegum greinum og aflað sér þannig stúdentsprófsréttinda til náms á háskólastigi. Þeir sem þegar hafa lokið almennu stúdentsprófi eða hliðstæðu starfsnámi geta stytt námstíma sinn um allt að helming.
Nánari upplýsingar um námið og innritun hjá deildarstjóra Keramikkjörsviðs: Ólöf Erla Bjarnadóttir keramik@myndlistaskolinn.is og í síma 5614995 (bein lína) eða gsm 8925544.






