Framhaldsskólastig - FULLT NÁM
Við Myndlistaskólann í Reykjavík eru nú starfræktar 2 deildir á framhaldsskólastigi þar sem kennsla miðast við fullt nám í dagskóla: Myndlistar- og hönnunarsvið og Keramik kjörsvið.
Myndlistar- og hönnunarsvið / fornám er 39 eininga nám í grunnatriðum sjónlista sem lokið er á einu ári í dagskóla. Námið undirbýr nemendur fyrir framhaldsnám í listgreinum í sérskólum og skólum á háskólastigi og veitir þeim trausta grunnmenntun fyrir fjölbreyttar greinar sjónlista.
Keramik kjörsvið, Myndlistaskólinn í Reykjavík og Tækniskólinn-skóli atvinnulífsins starfa saman að 21 eininga námi í grundvallatriðum í keramik, sem lokið er á einu misseri í dagskóla. Kennslan fer að öllu leyti fram á verkstæðum Myndlistaskólans og er námið grunnur að frekara námi í hönnun, listhandverki eða keramik í sérskólum eða á háskólastigi.




