Erlent samstarf
in
KNOWHOW II - Leonardo Transfer of Innovation project 2009 - 2011
- Myndlistaskólinn í Reykjavík hlaut Leonardo da Vinci styrk til að þróa tvær 2ja ára námsbrautir í teikningu í skapandi greinum og textíl. Verkefnið er unnið í samstarfi við Tækniskólann, list- og verkgreinaskóla í þremur Evrópulöndum og fyrirtæki á viðkomandi sviðum. Námið byggir á aðferðafræði skapandi verklags (non-verbal learning) sem Myndlistaskólinn hefur þróað. Efnisþekking og verklag eru útgangspunktar í báðum námsleiðum en með því er komið á tengingum milli ólíkra greina; hönnunar, myndlistar og skapandi iðnaðar. Sömuleiðis mun námið nýtast nemendum sem ekki finna sér farveg í hefðbundnu bóknámi. Námsleiðirnar munu enn fremur byggja á evrópskum viðmiðaramma um hæfni, sem hefur verið innleiddur í íslenskt menntakerfi. Þróað verður samhæft einingakerfi milli þátttökustofnana svo nemendur geti fengið nám sitt metið hjá menntastofnunum í öðrum Evrópulöndum.
- Vefur verkefnisins er Knowhow2.is
- Hugsandi hendur- málþing / Creative Skills - seminar 16.-17.september 2011
- Mat á verkefninu / Assessment
KNOWHOW - Leonardo da Vinci pilot project 2004 - 2007
- Myndlistaskólinn í Reykjavík átti frumkvæði að og stýrði verkefninu Knowhow, samstarfsverkefni sex listaskóla í Evrópu sem féll að þeim markmiðum Evrópusambandsins er lúta að bættri verk- og starfskunnáttu. Auk þess var það í samræmi við forgangsáherslur Evrópusambandsins 2003 – 2004 þar sem kallað er eftir nýjungum á sviði náms og kennslu í grunnþáttum verknáms og í kennslufræðum.
-
Áætlaður vinnslutími verkefnisins var 30 mánuðir ( nóv.2004-maí 2007). Megin markmið þess var að safna gögnum um, og skrá kennslu- og námsaðferðir listaskólanna 6 sem eru þáttakendur í KNOWHOW, þannig að unnt sé að miðla þeim áfram inn í víðara samhengi menntunar og náms.
-
Heimasíða verkefnisins er knowhow.is
-
VIÐURKENNING - Fyrirmyndarverkefni Leonardó starfsmenntaáætlunar ESB. Verkefnið hlaut gæðaviðurkenningu fyrir tilraunaverkefni 2000 - 2004.







