Umsókn

Skráning og greiðsla.

Myndlistaskólinn í Reykjavík hefur látið setja upp skráningarvef þar sem umsækjendur geta gengið frá skráningu og greiðslu fyrir:  Almenn námskeið og Barna- og unglinganámskeið.

Námskeið á VORÖNN 2012 hefjast frá og með 16.janúar - SKRÁNING ER HAFIN.

  • Skráningarvefur. Skráningarvefurinn opnast í nýjum glugga og byrja þarf á að velja "Nýskráning"  ef viðkomandi er ekki þegar skráður - sett er inn kennitala og búið til lykilorð. Alltaf þarf að byrja á að skrá forráðamann og síðan iðkendur (stundum sami), síðan þarf að velja af fellilistum: Deild - Flokk - Námskeið - Tímabil og fylla út greiðslutilhögun.
  • Á skráningarvefnum er einnig er hægt að ganga frá ráðstöfun frístundastyrks Reykjavíkurborgar, fá kvittun og skoða stöðu. 
  • Á vefnum er gert ráð fyrir greiðslum með kreditkorti, hægt er að skipta greiðslum (undantekningar frá því eru styttri námskeið og dagsnámskeið) eða færa á næsta kortatímabil. Einnig geta umsækjendur óskað eftir eingreiðslu á greiðsluseðli í heimabanka.
  • Starfsfók Myndlistaskólans vonar að þessi nýja vefskráning reynist vel og gerir jafnframt ráð fyrir áframhaldi á þróun á viðmóti vefsins en ábendingar og athugsemdir eru vel þegnar. 
  • Skráningar- og greiðsluvefurinn er settur upp af Dynax ehf en greiðslumiðlun og færsluhirðingu á milli korthafa og Myndlistaskólans annast  Borgun.